Dreifðu grímum á Dubliner og ræddu vopnaburð á Prikinu Árni Sæberg skrifar 28. september 2023 18:01 Sakborningar fyrir utan dómsal í Gullhömrum. Þeir máttu ekki vera inni í dómsal á meðan aðrir sakborningar gáfu skýrslu. Vísir/Vilhelm Sakborningar í Bankastrætis Club málinu báru um fyrir dómi að um hafi verið að ræða einhvers konar uppgjör við hóp manna sem kallaður hefur verið „Latino-hópurinn“. Sakborningarnir hafi ruðst 25 saman inn á skemmtistað til þess að ógna meðlimum hópsins.
Þetta kom fram í skýrslutökum sakborninga við aðalmeðferð málsins, sem fram fer í veislusalnum Gullhömrum vegna gríðarlegs umfangs málsins. Skýrslur voru teknar af sakborningunum 25 á mánudag, þriðjudag og miðvikudag. Á mánudagsmorgun fyrirskipaði dómari málsins að ekki mætti flytja fréttir af efni skýrslutakanna fyrr en að þeim loknum, en þeim lauk í dag. „Kvöldið í kvöld“ Sækjandi málsins spurði alla sakborninga að því hvernig þeir hefðu fengið veður af því að til stæði að mæta á Bankastræti Club þann 17. nóvember síðastliðinn. Flestir sögðu þeir að þeir hefðu fengið óljósar upplýsingar um það sem til stóð samdægurs eða jafnvel sama kvöld. Þá spurði sækjandi alla hvort þeir könnuðust við hópspjall á samfélagsmiðlinum Snapchat sem bar heitið Kvöldið í kvöld. Margir þeirra sögðu að þeim hefði verið bætt í spjallið en að þeir hefðu ekkert kannað innihald þess. Þá vildi enginn þeirra gefa upp hver hefði bætt þeim í hópinn. Dagmar Ösp Vésteinsdóttir sækir málið fyrir hönd ákæruvaldsins. Steinbergur Finnbogason er réttargæslumaður brotaþola.Vísir/Vilhelm Einn þeirra gekkst við því að hafa búið hópinn til en sagðist hafa verið beðinn um það. Hann kaus að tjá sig ekki um það hver hefði gert það. Sá sætir ákæru í málinu fyrir sérlega hættulega líkamsárás með því að hafa veist að einum brotaþola með ítrekuðum höggum, spörkum og hnéspörkum í höfuð og búk og hrint öðrum brotaþola, svo að hann féll við. Aðdragandi kvöldsins virðist að miklu leyti hverfast um þennan tiltekna sakborning sem stofnaði hópspjallið. Kveikt í bifhjólum sakbornings Alexander Máni Björnsson, sem sætir ákæru fyrir þrjár tilraunir til manndráps, sagði í skýrslutöku að hann, ásamt fleirum í hópnum sem réðst inn á Bankastræti Club, hafi viljað ógna meðlimum „Latino-hópsins“ til þess að fá þá til þess að láta af hótunum og ofbeldi í þeirra garð. Hann og besti vinur hans, sem stofnaði Kvöldið í kvöld, hafi þurft að sæta hótunum í að verða fjögur ár, eða frá því að hann var að verða sautján ára gamall. „Til að byrja með beindist þetta bara að mér og [vininum] út af því að [vinurinn] hafði átt að hafa sofið með fyrrverandi ónafngreinds aðila. Enginn veit af hverju Spánverjarnir blönduðust inn í þetta, Jhon og Gabbi og fleiri,“ sagði Alexander Már. Þá báru margir sakborningar um það að meðlimir „Latino-hópsins“ hefðu lagt eld að bifhjólum í eigu hans. „Við ætluðum að fara til að ræða við þá og vildum að þetta myndi bara stoppa, þetta var orðið mjög þreytandi. Síðan fór þetta úrskeiðis. Ég veit ekki hvað skal segja,“ sagði hann. Hittust á Dubliner og fengu grímur Sakborningar báru flestir um að þeir hafi mælt sér mót á skemmtistöðunum Dubliner og Paloma, sem eru í sama húsi við Naustin í Reykjavík. Sumir sögðust þó hafa verið þar fyrir tilviljun og bæst þannig í hópinn. Sakborningar söfnuðust saman á skemmtistaðnum Dubliner. Þar var síðar framin skotárás sem einn sakborninga lenti í.Vísir/Jóhann Þar hafi þeir rætt hvað til stóð í hálfkveðnum vísum, einhverjir hafi farið að sækja grímur sem þeir höfðu úti í bíl og öðrum verið bent á að þeir gætu fengið grímur við barinn. Sakborningar sammæltust um það að þeir hafi viljað vera með grímur til þess að menn úr hinum hópnum þekktu þá ekki. Að fela sig frá lögreglunni hafi ekkert haft með það að gera heldur hafi þeir óttast hefndaraðgerðir. Fóru á Prikið og ræddu að taka ekki með vopn Ljóst er að minnst einn sakborninganna var vopnaður eggvopni þegar hópurinn réðst inn á Bankastræti Club, þar sem hann hefur gengist við því að hafa stungið tvo brotaþola. Flestir sakborninganna sögðu þó fyrir dómi að ekkert hafi verið rætt um hugsanlegan vopnaburð. Margir þeirra sögðu að þeir hefðu aldrei tekið þátt árásinni hefðu þeir vitað af slíku. „Það er eitthvað sem ég mun aldrei tileinka mér, að taka þátt í hnífstunguárásum,“ sagði einn þeirra. Aðrir sögðu hins vegar að vopnaburður hefði verið ræddur og að menn hafi sammælst um það að fara alls ekki vopnaðir á vettvang. Sumir sögðu það hafa verið rætt á skemmtistaðnum Prikinu, þar sem þeir hafi farið eftir að hafa hist á Dubliner en aðrir að það hafi verið rætt strax á Dubliner. Sækjandi spurði einn sakborninga út í ummæli um eggvopn sem hann viðhafði í skýrslutöku hjá lögreglu. „Fólk var að tala um að koma með eggvopn og eitthvað svona, aðrir sögðu að það væri óþarfi." Fyrir dómi sagði hann að hann hefði ekki vitað hvað eggvopn væri, hann hefði haldið að það væri kylfa. Hann hefði komist að því daginn fyrir aðalmeðferð að eggvopn væru hnífar. Einum sakborninga er gefið að sök að hafa veist að brotaþolum með lítilli kylfu. Starfsmaður Bankastrætis Club hafi sagt brotaþola vera þar Frá Prikinu hafi mennirnir farið í leit að meðlimum Latino-hópsins í þeim tilgangi að ræða við þá. Fá þá til að láta af hótunum og ofbeldi í garð manna úr hópi sakborninga og fólki tengdu þeim. Einn sakborninga sagði að hann hefði fengið upplýsingar frá starfsmanni Bankastrætis Club að brotaþolinn Jhon Sebastian væri þar og því hafi hersingin haldið þangað og ruðst inn á staðinn.
Hnífstunguárás á Bankastræti Club Reykjavík Dómsmál Tengdar fréttir Segir atburðarásina hafa þróast út í múgæsingu Maður á fertugsaldri sem er meðal ákærðu í Bankastræti Club-málinu svokallaða neitar því staðfastlega að vera ofbeldismaður og segist ekki hafa haft í hyggju að fara inn hið örlagaríka kvöld þegar hópur veittist að þremur mönnum á skemmtistaðnum. 13. september 2023 07:34 Játar að hafa stungið tvo en ekki þrjá Fyrirtöku í Bankastræti club-málinu svokallaða lauk í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Karlmaður, sem ákærður er fyrir alvarlegasta hluta líkamsárásarinnar, breytti afstöðu sinni til sakargifta. Hann játar að hafa stungið tvo en ekki þrjá eins og áður. 14. júlí 2023 17:33 Fá ekki að hlusta hver á annan Ákveðið var í undirbúningsþinghaldi í Bankastræti-Club málinu í morgun að sakborningar myndu ekki sitja inni í dómsal í Gullhömrum. Þeir munu sitja því frammi og koma inn einn af öðrum. Verjendur mótmæla ákvörðuninni. Á fimmtudag verður fjölmiðlabanni aflétt. 25. september 2023 10:17 Mest lesið Sánuferðir hafi svipuð áhrif á hjartað og líkamsrækt Innlent Segir ríkið bera ábyrgð í máli mannsins á Hverfisgötu Innlent Níu drepnir í drónaárás á rútu Erlent Dæmdur fyrir brot gegn fimmtán börnum í viðbót Innlent Svalt þokuloft ekki langt undan Innlent Ók fullur á nokkra kyrrstæða bíla Innlent Keilusambandið sakað um djúpstæða spillingu Innlent Sýknaðir af ákæru fyrir að brjótast inn í eigið hús Innlent Samþykktu fangaskipti á næstu dögum Erlent Tugmilljóna gjaldþrot meðhöndlarans Innlent Fleiri fréttir Svalt þokuloft ekki langt undan Ók fullur á nokkra kyrrstæða bíla Sánuferðir hafi svipuð áhrif á hjartað og líkamsrækt Segir ríkið bera ábyrgð í máli mannsins á Hverfisgötu Björgunarmiðstöð byggð á Flúðum Eftirspurn á hlutabréfamarkaði mikil og blómstrandi gróður Sýknaðir af ákæru fyrir að brjótast inn í eigið hús Hvetja stjórnvöld í Ísrael til að breyta stefnu sinni tafarlaust Hefur áhyggjur af öryggi skólabarna í Laugardal Úlfar heldur fullum launum í heilt ár Keilusambandið sakað um djúpstæða spillingu Umferðarljós við gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar óvirk Óheillaskref að áfengi sé selt á vellinum Mikið viðbragð Gæslunnar vegna veikinda langt úti á hafi Tugmilljóna gjaldþrot meðhöndlarans Bein útsending: Sterkari saman - Þjóðarsjúkrahús í 25 ár Afstaða fær 600 þúsund í verðlaun frá Reykjavíkurborg Dæmdur fyrir brot gegn fimmtán börnum í viðbót Sakar RÚV um óvandaðan fréttaflutning um fjármál borgarinnar Rafmagnslaust á Granda Nítján í haldi vegna fíkniefnainnflutnings um Keflavíkurflugvöll Mál Margeirs til Landsréttar Fjármálaráðherra ánægður með söluna á Íslandsbanka Hvetja kattaeigendur til að setja kettina í útivistarbann „Nú er verkstjórn tekin við sem gengur í málið“ Þrír grunaðir í tengslum við brunann á Stuðlum Ökumenn séu oft með óþarfa munnsöfnuð og fingurinn á lofti Vó að æru Margeirs með því að færa hann til í starfi Óvíst hvar börnin lenda í haust Kölluð út vegna slagsmála og svo aftur vegna berserksgangs sama manns Sjá meira
Segir atburðarásina hafa þróast út í múgæsingu Maður á fertugsaldri sem er meðal ákærðu í Bankastræti Club-málinu svokallaða neitar því staðfastlega að vera ofbeldismaður og segist ekki hafa haft í hyggju að fara inn hið örlagaríka kvöld þegar hópur veittist að þremur mönnum á skemmtistaðnum. 13. september 2023 07:34
Játar að hafa stungið tvo en ekki þrjá Fyrirtöku í Bankastræti club-málinu svokallaða lauk í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Karlmaður, sem ákærður er fyrir alvarlegasta hluta líkamsárásarinnar, breytti afstöðu sinni til sakargifta. Hann játar að hafa stungið tvo en ekki þrjá eins og áður. 14. júlí 2023 17:33
Fá ekki að hlusta hver á annan Ákveðið var í undirbúningsþinghaldi í Bankastræti-Club málinu í morgun að sakborningar myndu ekki sitja inni í dómsal í Gullhömrum. Þeir munu sitja því frammi og koma inn einn af öðrum. Verjendur mótmæla ákvörðuninni. Á fimmtudag verður fjölmiðlabanni aflétt. 25. september 2023 10:17