Albert bætti tvö met og þar á meðal langafa síns Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. október 2023 10:31 Albert Guðmundsson fagnar öðru marki sínu fyrir Genoa á móti Udinese í gær. EPA-EFE/GABRIELE MENIS Íslenski knattspyrnumaðurinn Albert Guðmundsson setti tvö íslensk markamet í efstu deild ítalska fótboltans þegar hann fór á kostum með Genoa liðinu í gær.
Albert skoraði tvö mörk í jafntefli Genoa og Udinese en bæði mörkin skoraði hann í fyrri hálfleiknum. Þetta var annar deildarleikurinn í röð Albert er á skotskónum. Albert varð þarna fyrsti íslenski leikmaðurinn til að skora tvö mörk í einum leik í Seríu A. Fjórir íslenskir leikmenn höfðu skorað í Seríu A en enginn þeirra meira en eitt mark í leik. Albert varð um leið fyrsti íslenski leikmaðurinn til að skora þrjú mörk á einu tímabili í Seríu A. Fyrir þetta tímabil höfðu þrír íslenskir leikmenn náð að skora tvö mörk á einu tímabili í efstu deild á Ítalíu. Langafi Alberts og alnafni var einmitt fyrsti íslenski leikmaðurinn til að skora í ítölsku deildinni þegar hann skoraði tvö mörk fyrir AC Milan tímabilið 1948-49. Sá næsti til þess var Birkir Bjarnason sem skoraði tvö mörk með Pescara tímabilið 2012-13. Tímabilið á eftir skoraði Emil Hallfreðsson tvö mörk fyrir Hellas Verona. Emil er markahæsti íslenski leikmaðurinn í Seríu A með fimm mörk en Albert, sem hefur skorað fjögur mörk, vantar aðeins eitt mark til að jafna það met.
Ítalski boltinn Mest lesið Olnbogi Ægis brotnaði Körfubolti Leitar að beinmergsgjöfum fyrir kærustuna sína Fótbolti Ægir fluttur í burtu í sjúkrabíl Körfubolti Ekitike sleit hásin Fótbolti Rory McIlroy gerði dóttur sína vandræðalega Golf „Þessu einvígi var stolið frá okkur“ Fótbolti „Þeir hefðu átt að henda honum út úr húsi fyrir þetta“ Körfubolti „Ekkert annað sem freistaði mín meira en þetta“ Handbolti Sjáðu Dembélé skjóta Liverpool úr leik og markið mikilvæga hjá Atlético Fótbolti „Brugðumst vel við í krefjandi aðstæðum“ Körfubolti Fleiri fréttir Oliver keyptur af KA Gæti misst fjóra leikmenn í bann og vill breyta reglunum Real Madrid goðsögn fallin frá Ekitike sleit hásin „Þessu einvígi var stolið frá okkur“ Sjáðu Dembélé skjóta Liverpool úr leik og markið mikilvæga hjá Atlético Leitar að beinmergsgjöfum fyrir kærustuna sína Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Gylfi eftirlitsmaður hjá Arsenal í Meistaradeildinni „Svo margir dómar hafa fallið gegn okkur“ Atlético Madrid í undanúrslit eftir mikla dramatík PSG sótti sigur á Anfield og sló Liverpool út Isak byrjar hjá Liverpool en Salah er aftur á bekknum Hættur að þjálfa Messi fjórum mánuðum eftir titilinn Uppgjörið: Ísland - Úkraína 1-0 | Stelpurnar okkar nældu í þrjú stig Thelma Karen í byrjunarliðinu „Þau gefa okkur ótrúlega mikið með því að sýna okkur áhuga“ Iraola yfirgefur Bournemouth Vill sjá styttri leiki með engum spjöldum og fleiri mörkum „Trúum því að við getum gert eitthvað sérstakt“ Viðbrögðin við ráðningu kvenþjálfara „vandræðaleg“ „Hleyp jafn hratt og Mikael“ Arnar sleit sin í hné og bíður svara varðandi framhaldið ÍA svarar: Allar frásagnir hafa fleiri en eina hlið Ganverjar fá reynslubolta til starfa fyrir HM Flick fannst grasið ekki nógu vel slegið hjá Atlético Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Ólympíukóngurinn fjárfestir í skák eins og Haaland Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal Sjá meira