Manninum sem fannst látinn í austurborginni virðist hafa verið ráðinn bani Jón Þór Stefánsson skrifar 3. október 2023 17:17 „Við erum alveg á fullu í því að rannsaka þetta mál,“ segir Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu Vísir/Egill Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir allt benda til þess að manni, sem lést eftir að hafa fundist meðvitundarlaus um þarsíðustu helgi, hafi verið ráðinn bani.
Kona sem var handtekinn á vettvangi málsins, er nú grunuð um að hafa orðið honum að bana. Maðurinn, sem var á sextugsaldri, fannst meðvitundalaus í íbúð fjölbýlishúss í austurborginni laugardaginn 23. september. Lögreglan fékk tilkynningu um manninn og reyndi endurlífgun á honum, en hann var úrskurðaður látinn við komu á sjúkrahús. „Í upphafi var bara mjög óljóst með hvaða hætti maðurinn hefði látist, en nú eru vísbendingar um að honum hafi verið ráðinn bani,“ segir Ævar í samtali við Vísi og útskýrir að krufning hafi leitt þessar vísbendingar í ljós. DV greindi fyrst frá því að konan væri nú grunuð um að hafa orðið manninum að bana, en þegar hún var fyrst handtekin var það sagt á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Núverandi gæsluvarðhaldsúrskurður rennur út á morgun. Aðspurður um hvort krafist verði frekara gæsluvarðhalds á hendur konunni segir Ævar við Vísi að það muni koma í ljós á morgun. „Það er mikið sem þarf að vinna í þessu máli, mörg gögn sem þarf að afla og margar skýrslur sem þarf að taka. Við erum alveg á fullu í því að rannsaka þetta mál,“ segir hann.
Mannslát til rannsóknar í Bátavogi Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Fleiri fréttir Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Sjá meira