Fótbolti

Hljóð­brot af sam­­skiptunum sem ollu því að mark Diaz var dæmt af gert opin­bert

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Luis Diaz var eðlilega steinhissa þegar mark hans gegn Tottenham um síðustu helgi fékk ekki að standa.
Luis Diaz var eðlilega steinhissa þegar mark hans gegn Tottenham um síðustu helgi fékk ekki að standa. Ryan Pierse/Getty Images

Ensku dómarasamtökin PGMOL hafa gert hljóðbrot af samskiptum dómara og VAR-dómara leiks Tottenham og Liverpool í ensku úrvalsdeildinni sem fram fór um síðustu helgi.

Það voru heimamenn í Tottenham sem höfðu betur í leiknum, 2-1, eftir sjálfsmark í uppbótartíma, en ekki er hægt að segja að sigurinn hafi verið óumdeildur.

Curtis Jones fékk að líta beint rautt spjald í liði Liverpool eftir aðeins um 25 mínútna leik, en þrátt fyrir að vera manni færri virtust gestirnir frá Bítlaborginni vera að taka forystunna stuttu síðar þegar Luis Diaz kom boltanum í netið eftir stungusendingu frá Mohamed Salah.

Hins vegar var markið dæmt af vegna rangstöðu við litla hrifningu gestanna frá Liverpool. Atvikið var svo skoðað í VAR-herberginu og þar virtist það vera nokkuð augljóst að Diaz var vissulega ekki rangstæður þegar sendingin frá Salah kom. Þrátt fyrir það var rangstöðudómurinn látinn standa og eftir að hafa misst annan mann af velli með rautt spjald mátti Liverpool þola 2-1 tap eftir sjálfsmark frá Joel Matip í uppbótartíma síðari hálfleiks.

Ensku dómarasamtökin PGMOL viðurkenndu mistök strax eftir leik og þeir Simon Hooper, dómari leiksins, og Darren England, VAR-dómari, hafa verið settir í kælingu eftir mistökin.

Nú hafa samtökin birt hljóðupptöku af samskiptum dómarateymisins á meðan leik stóð. Þar má heyra að um misskilning milli manna var að ræða þar sem Darren England í VAR-herberginu hélt að dómarateymið á vellinum hefði dæmt mark.

Dómararnir á vellinum dæmdu hins vegar rangstöðu og leyfðu leikmönnum Tottenham því að taka aukaspyrnuna þegar þeir fengu skilaboð um það að búið væri að skoða atvikið og að dómurinn á vellinum myndi standa. Samskipti dómaranna má hlusta á með því að smella hér.


Tengdar fréttir

Eiginkona Jota kallar dómarana trúða

Rute Cardoso, eiginkona Liverpool-mannsins Diogos Jota, var langt frá því að vera sátt við dómgæsluna í leiknum gegn Tottenham í ensku úrvalsdeildinni um helgina.

Liver­pool ekki búið að segja sitt síðasta í VAR hneyksli helgarinnar

Varsjáin er oft á milli tannanna á fólki eftir hverja helgi í ensku úrvalsdeildinni en það er nýtt af nálinni að dómarar séu farnir að dæma af lögleg mörk og verja sig svo með því að þetta hafi allt verið einhver misskilningur eins og Georg Bjarnfreðarson forðum.

Fá ekki að dæma fleiri leiki í þessari umferð

Darren England og Dan Cook hafa verið leystur frá störfum sínum sem dómarar í næstu leikjum ensku úrvalsdeildinnar eftir að hafa gerst sekir um slæm mistök í VAR herberginu í leik Tottenham og Liverpool í gær. 

VAR dómarinn hélt að markið hefði staðið

Dómarinn í VAR herberginu á leik Tottenham og Liverpool hefur viðurkennt mistök sín að leyfa ekki marki Luis Diaz að standa. Hann segir málið allt byggt á misskilningi. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×