Fótbolti

Arnór skoraði tvö í stórsigri

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Arnór Sigurðsson reimaði á sig markaskóna í dag.
Arnór Sigurðsson reimaði á sig markaskóna í dag. Alex Dodd - CameraSport via Getty Images

Arnór Sigurðsson skoraði tvívegis er Blackburn vann afar öruggan 4-0 útisigur gegn QPR í ensku B-deildinni í knattspyrnu í dag.

Arnór tvöfaldaði forystu Blackburn á 23. mínútu eftir að Tyrhys Dolan hafði komið liðinu yfir fjórum mínútum áður og staðan var þvó 2-0 í hálfleik, Blackburn í vil.

Arnór var svo aftur á ferðinni á 60. mínútu er hann skoraði þriðja mark liðsins, en hann var svo tekinn af velli beint í kjölfarið á markinu.

Gestirnir í Blackburn bætti svo fjórða markinu við stuttu síðar og þar við sat.

Niðurstaðan því 4-0 sigur Blackburn sem nú situr í 17. sæti ensku B-deildarinnar með 13 stig eftir 11 leiki, fimm stigum meira en QPR sem situr í 22. sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×