Verjandi vildi fjórtán milljónir en fær ekki neitt í bili Árni Sæberg skrifar 11. október 2023 10:57 Landsréttur úrskurðaði svo að Sverrir fengi ekkert greitt í bili. Vísir/Vilhelm/land lögmenn Landsréttur hefur fellt úrskurð Héraðsdóms Suðurlands vegna kröfu lögmanns um greiðslu málsvarnarlauna vegna starfa hans í þágu manns, sem grunaður er um manndráp á Selfossi í vor, niður. Lögmaðurinn hafði krafist greiðslu tæplega fjórtán milljóna króna en héraðsdómur úrskurðaði honum rúmlega sex milljónir. Landsréttur gerði það á grundvelli þess að málinu er ekki lokið.
Sverrir Sigurjónsson var skipaður verjandi manns, sem grunaður er um að hafa orðið ungri konu að bana þann 27. apríl síðastliðinn, þegar hann var færður fyrir dómara daginn eftir. Í úrskurði héraðsdóms segir að ekki verði betur séð en að sú skipun hafi haldist til 11. ágúst, þegar annar lögmaður var skipaður verjandi mannsins. Sá er Vilhjálmur H. Vilhjálmsson. Lögreglustjórinn neitaði að borga Í úrskurði héraðsdóms segir að Sverrir hafi þann 17. júlí sent reikning upp á 13,9 milljónir króna í gegnum einkahlutafélag sitt. Þar séu tilgreindar 440,95 vinnustundir og hver vinnustund tiltekin 24.300 krónur, auk 24 prósent virðisaukaskatts. Fyrsti vinnudagur sé tilgreindur 27. apríl síðastliðinn eftir að sakborningur var handtekinn og sá síðasti 15. júlí þegar kemur símtal frá sakborningi til Sverris um að hann ætli að skipta um verjanda. Þá sé tiltekinn akstur á reikningnum, alls 5.115 kílómetrar og hver kílómetri á 121 krónu. Með tölvupósti þann 19. júlí hafi Lögreglustjórinn á Suðurlandi hafnað að greiða reikninginn að svo stöddu. Sverrir hafi þá óskað eftir því að héraðsdómur úrskurðaði um verjendalaun hans. Hafi alltaf þurft að vera til taks Í beiðni Sverris hafi sagt að rannsókn málsins hafi verið afar yfirgripsmikil. Að kröfu lögreglu hafi sakborningur verið látinn sæta einangrun í fangelsinu á Hólmsheiði. Sakborningur hafi verið í miklu áfalli og liðið afar illa vegna andlátsins. Sverrir hafi þurft að vera í stöðugu sambandi við hann meðan á einangrunarvistinni stóð, auk þess að vera viðstaddur fjölmargar skýrslutökur, húsleitir og setja fram kröfur um gögn og upplýsingar hjá lögreglu. Vegna málsins hafi hann ávallt þurft að vera til taks og hafi meðal annars misst af ferðalögum og uppákomum sem áður hafi verið bókaðar sumarið 2023 og hann hafi greitt fyrir. Málið hafi margsinnis verið tekið fyrir í Héraðsdómi Suðurlands til framlengingar á gæsluvarðhaldi sakbornings. Þann 15. júlí hafi svo sakborningur óskað eftir því að annar lögmaður yrði skipaður verjandi í stað Sverris. Reikningurinn hafi ekki fengist greiddur og sé því borið við af hálfu lögreglu að Sverrir hafi eytt meiri tíma í verjandastörfin en nauðsynlegt hafi verið. Af hálfu Sverris sé því hins vegar haldið fram að öll sú vinna sem tiltekin er á tímaskýrslunni hafi, eins og á stóð, verið nauðsynleg, sérstaklega í ljósi þess að sakborningur, sem hafi verið í áfalli vegna atviksins, hafi verið látinn sæta einangrun og þurft á mikilli aðstoð að halda, eins og fram komi í skýrslum sálfræðings. Ræddu um daginn og veginn Í úrskurði héraðsdóms segir að tímaskýrsla Sverris hafi verið alls þrettán blaðsíður, þar af 167 færslur vegna vinnu og 47 færslur vegna aksturs. „Áberandi er í færslum vegna vinnu að þar eru tilteknar margar ferðir og margar vinnustundir sóknaraðila í fangelsið að Hólmsheiði til að tala við sakborning og er á stundum tiltekið að rætt sé um daginn og veginn.“ Þá hafi verið ýmsar færslur þar sem Sverrir kaupir fyrir sakborning og færir honum ýmsar vörur svo sem snakk, drykkjarvörur og DVD diska. Þá komi fram að Sverrir hafi eytt verulegum tíma í að hughreysta sakborning og ræða við hann á nótum sálgæslu. Þannig séu í tímaskýrslunni fjölmargar færslur sem ekki varða raunverulegar starfsskyldur skipaðs verjanda, svo sem vegna viðveru við skýrslugjöf sakbornings, viðveru vegna rannsóknaraðgerða lögreglu, vinnu í dómsal eða undirbúning vegna slíkrar vinnu og greinargerðaskrif vegna kæru úrskurða til Landsréttar. Hefði betur hringt en að keyra á Hólmsheiði Það sé álit dómsins að verulegur hluti þeirrar vinnu sem tilfærð er á tímaskýrslu Sverris sé utan starfsskyldna hans sem skipaður verjandi sakbornings eins og það er skilgreint í lögum. Hið sama gildi um akstur sem tilfærður er á tímaskýrslunni, það er að margar ferðir sem tilteknar eru hafi verið óþarfar og að rétt hefði verið fyrir Sverri að sinna þeim erindum með símtali, að því marki sem erindin féllu undir hlutverk skipaðs verjanda. Í beiðni Sverris sé vísað til þess að vegna málsins hafi hann ávallt þurft að vera til taks og þess vegna misst af ferðalögum og uppákomum sem áður hafi verið ákveðnar og greiddar. Þessar röksemdir virðist byggja á því að hann hafi raunverulega verið á bakvakt vegna málsins allt síðastliðið sumar. Við ákvörðun þóknunar hans sé ekki unnt að líta til þessa. Þannig sé ekki unnt að byggja ákvörðun um þóknun á sjónarmiðum um bakvakt, sem feli í raun í sér vinnu sem ekki var unnin. Þá sé heldur ekki unnt að taka tillit til ferðalaga og uppákoma sem Sverrir kveðst hafa misst af vegna verjandastarfanna. Héraðsdómur Suðurlands samþykkti tímafjölda vegna málsins 204 stundir og fjölda ekinna kílómetra 1.080. Því voru honum úrskurður verjendalaun upp á 6,1 milljón króna og aksturskostnað upp á 152 þúsund krónur. Ekki tímabært að kveða á um þóknun Í úrskurði Landsréttar, sem kveðinn var upp þann 6. október en birtur í gær, segir að í lögum um meðferð sakamála segi að dómari ákveði þóknun verjanda í dómi eða úrskurði ef máli ljúki þannig nema hann hafi afsalað sér þóknun. Í öðrum málslið sama lagaákvæðis sé mælt fyrir um að ljúki máli ekki með þeim hætti ákveði dómari þóknun með bókun í þingbók eða skriflega á annan hátt. Ekki liggi fyrir að máli Lögreglustjórans á Suðurlandi gegn fyrrverandi umbjóðanda Sverris hafi lokið í skilningi laganna. Breyti þar engu um þótt Sverrir hafi látið af störfum í málinu og annar verjandi skipaður. Að þessu virtu væri ekki tímabært að kveða á um þóknun Sverris með þeim hætti sem gert var með úrskurði Héraðsdóms Suðurlands, sem Sverrir kærði sjálfur, og hann því felldur úr gildi.
Dómsmál Grunur um manndráp á Selfossi Árborg Lögmennska Mest lesið Stór lögregluaðgerð í Laugardal Innlent Falsaði bréf frá skólastjóra á kostnað Kennarasambandsins Innlent Hefði stoppað Magga Mix á punktinum Innlent Björgunarbátur Ormsins langa blés ekki út Innlent Segir mögulegt að hundurinn sé á lífi Innlent Væri hræddari við loftárásir en Palestínumenn væri hún í Palestínu Innlent Þarf að láta sér átta ára dóm lynda Innlent „Mjög óeðlileg nálgun“ Innlent Hafnaði lægstu tilboðum í smíði brúa á Vestfjörðum Innlent Verði svo gott sem heimilislaus í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Krefjast bóta á umferðaröryggi í kjölfar alvarlegs slyss sjö ára drengs Vill palestínska fánann niður við ráðhúsið Segir mögulegt að hundurinn sé á lífi Minnihluti verði að sætta sig við að hann sé ekki við völd Ætla að synda frá Elliðaey til Heimaeyjar Taldi ekki ástæðu til að kalla inn varamann á meðan hún fór í frí „Börnin útskrifast með bókstaf hjá okkur en tölur í framhaldsskóla“ Stór lögregluaðgerð í Laugardal Verði svo gott sem heimilislaus í Kópavogi Gæsluvarðhald frönsku konunnar framlengt Málþóf, hætta í umferðinni og umdeildur fáni Birna tekur sæti Áslaugar á þingi Afkomanda Trampe greifa hleypt inn í Alþingishúsið Hafnaði lægstu tilboðum í smíði brúa á Vestfjörðum Þyrlan sækir slasaðan göngumann í Patreksfjörð „Mun koma í ljós“ hvort kennarar eða Tripical þurfi að endurgreiða Björgunarbátur Ormsins langa blés ekki út Fjórtán fengu úthlutað fræðimannadvöl í Jónshúsi Væri hræddari við loftárásir en Palestínumenn væri hún í Palestínu Sýklalyfjaónæmar bakteríur greindust í íslenskum svínum Þrýst á flugmenn Landhelgisgæslunnar meðan samningar tefjist „Mjög óeðlileg nálgun“ Óvenjulegt málþóf og lítill pólitískur ávinningur Palestínski fáninn dreginn að húni við Ráðhúsið Hefði stoppað Magga Mix á punktinum „Það er samkeppni um starfsfólk“ Landspítalaforstjóri fagnar svörtu skýrslunni Þarf að láta sér átta ára dóm lynda Krefur ráðuneytið svara um föstudagslokun Sjúkratrygginga Vill þyngja refsingar við líkamsárásum Sjá meira