„Það verður vígsla 25. október,“ segir Sigurþór Guðmundsson, verkefnisstjóri Vegagerðarinnar í Gufudalssveit, í samtali við fréttastofu og segir áformað að innviðaráðherrann Sigurður Ingi Jóhannsson opni brúna þann dag.
„Það er núna verið að setja niður vegrið. Það er þó óvíst hvort það náist að mála allar línur á veginn fyrir opnun,“ segir Sigurþór.

Með opnun brúarinnar styttist Vestfjarðavegur um Þorskafjörð um níu kílómetra. Brúin sjálf er 260 metra löng en vegtengingar sem fylgja brúnni eru samtals 2,7 kílómetrar.
Aðalverktakinn Suðurverk hóf verkið vorið 2021, með verksamning sem lægstbjóðandi upp á 2,2 milljarða króna, en byggingarfélagið Eykt smíðaði brúarmannvirkið sem undirverktaki. Klæðningarflokkur Borgarverks lagði svo bundið slitlag á veginn í haust, eins og sjá mátti í beinni útsendingu Stöðvar 2 í síðasta mánuði:
Samtímis vinnur Borgarverk að því að ljúka ellefu kílómetra löngum vegi um Teigsskóg en þar höfðu verklok verið áætluð í lok þessa mánaðar. Hæpið er að það náist en Atli Þór Jóhannsson, framkvæmdastjóri Borgarverks, segir veður válynd þessa dagana og óábyrgt að nefna ákveðna tímasetningu um opnun vegarins. Hann kveðst þó vonast til að hægt verði að hleypa umferð á hann í nóvember, en hugsanlega verði þá einhver kafli hans án slitlags.
Þá er nýr sex kílómetra vegur inn Djúpafjörð, milli Djúpadals og Hallsteinsness, nánast tilbúinn, að sögn Sigurþórs Guðmundssonar. Verktaki er Norðurtak. Þessi vegarkafli mun tímabundið verða hluti Vestfjarðavegar eða þar til þverun Gufufjarðar og Djúpafjarðar lýkur, sem Sigurþór vonast til að geti orðið árið 2026.

Opnun nýju veganna um Teigsskóg og Djúpafjörð, væntanlega í næsta mánuði, þýðir að vegfarendur losna við að aka um Hjallaháls, 336 metra háan fjallveg milli Þorskafjarðar og Djúpafjarðar.

Á Dynjandisheiði vonast Sigurþór einnig til að hægt verði fyrir veturinn að opna hluta vegarins sem Suðurverk er að leggja yfir háheiðina. Sá kafli er milli Norðdalsár og Vatnahvilftar, um fjögurra kílómetra langur, en tvísýnt er hvort náist að leggja á hann bundið slitlag vegna veðurs. Sigurþór segir að kaflinn verði þá opnaður án klæðningar.