Hágæða lífrænar snyrtivörur eftir Rose-Marie Swift Elira 13. október 2023 10:33 Rose Marie sem er 68 ára hefur slegið rækilega í gegn á samfélagsmiðlinum Tiktok og er með um 100 milljóna áhorf á miðlinum í gegnum merkið sitt RMS beauty lífrænu förðunarvörurnar njóta mikilla vinsælda hjá versluninni Elira. Verslunin fagnar tveggja ára afmæli sínu um helgina og af því tilefni er 20% afsláttur af öllum vörum frá föstudegi til sunnudags, veglegir kaupaukar og kynningar bæði föstudag og laugardag.
Lífrænar förðunarvörur í hæsta gæðaflokki RMS Beauty eru lífrænar förðunarvörur stofnaðar af Rose-Marie Swift árið 2009. Rose-Marie hefur starfað sem förðunarfræðingur í yfir 30 ár og meðal annars farðað fyrir Harper Bazar og Victorias Secret. Á þeim tíma áttaði hún sig á því að förðunarvörur ættu að vera mikið betri og með mikið betri innihaldsefni en þær voru ásamt því að hafa þá eiginleika að gera húðina betri. Þá hóf hún þá vegferð að koma förðunarmerki sínu á koppinn. Með dirfsku að vopni og óbilandi áhuga á að finna hrein hráefni sem virka vel og skila góðum árangri stofnaði hún RMS til að hreinsa til í iðnaðinum og setja hærra viðmið fyrir snyrti- og förðunarvörur. Fallegar og góðar fyrir húðina RMS vörurnar eru framleiddar úr hráum, lífrænum efnum með nýjustu tækni í snyrtigeiranum. Þær hafa einnig þann stórkostlega eiginleika að hægt er að nota þær á margskonar hátt, kinnalit sem varalit og Highlighter sem augnskugga og gloss. Vörurnar eru vel merktar innihaldsefnum og merkið hefur ekkert að fela. Merkið er vel meðvitað um umhverfismál en steig nýtt skref þegar það setti á markað fyrstu vöruna sína sem hægt væri að kaupa áfyllingu fyrir. Allar vörurnar eru án parabena, gluten, gervi ilmefna, GMO, sulfate, phthalates og talc. Vörurnar eru aldrei prufaðar á dýrum. Heimsfræg á Tiktok á fullorðinsaldri Rose Marie sem er 68 ára hefur slegið rækilega í gegn á samfélagsmiðlum og Tiktok og er með um 100 milljóna áhorf á miðlinum í gegnum merkið sitt. Hún sýnir á einfaldan og þægilegan hátt hvernig skal farða sig á öllum aldri. Hún vill ekki að þetta sé of flókið og að allir geti ýtt undir sína fegurð með hreinum og góðum vörum. Fagleg ráðgjöf og góð þjónusta mikilvæg RMS Beauty vörurnar færðu í versluninni Eliru í Smáralind. Verslunin selur einnig snyrtivörur frá Chanel, Augustinus Bader, Dr. Barbara Sturm, Nimya og Comfort Zone svo eitthvað sé nefnt. Snyrtivöruverslunin leggur áherslu á ráðgjöf og góða þjónustu. „Úrvalið af húð- og snyrtivörum er mikið í dag og aðgengi að allskonar upplýsingum er ótæmandi. Því er mikilvægt að geta fengið faglega ráðgjöf um innihald og rétta notkun húð- og förðunarvara. Hér í Eliru vinna eingöngu lærðir snyrtifræðingar og förðunarfræðingar og við bjóðum einungis upp á hágæða snyrtivörur og förðunarvörur ásamt persónulegri þjónustu,“ segir Rakel Ósk Guðbjartsdóttir snyrtifræðingur og eigandi snyrtivöruverslunarinnar Elira. Nánar á elira.is.
Hár og förðun Tíska og hönnun Mest lesið „Rúrik Gíslason hefur sagt hæ við mig“ Lífið Jafet Máni selur íbúð með ræktarsal Lífið Centro-hjónin selja Beverly Hills-villuna Lífið Ertu sauður? Fimm ráð sem geta forðað þér frá hjarðhegðun Lífið Ástarsenur í viku tvö með stórleikaranum Lífið Segir spjallmenni Meta herja kynferðislega á börn Lífið Kókaínklásúla í kaupmálanum tryggir Keith rúman milljarð Lífið Rússar meina kvikmyndagerðarmanni að koma til Íslands Bíó og sjónvarp „Þarf ekkert að klífa Everest til að finnast ég einhvers virði“ Lífið Eitt rými sem má alls ekki mynda í Alþingishúsinu Lífið Fleiri fréttir Hug-A-Lums þyngdarbangsar sem allir elska The Ultimate Eagles halda tónleika í Hörpu Ætla að syngja sig hás og dansa við Komdu um jólin Stjörnurnar flyktust á frumsýningu einnar mest spennandi bíómyndar ársins Serumið sem snýr öldrun húðarinnar við Heilbrigður hársvörður er lykillinn að fallegu hári Ógleymanlegar skíðaferðir með Bændaferðum Fékk sterkari bein án lyfja Sjö rétta líbönsk veisla sem þú mátt alls ekki missa af! Hlaupaæfing með Rakel Maríu á Heilsudögum í Hagkaup tókst afar vel Uppselt, uppselt og aukatónleikum bætt við Sumar á Sýrlandi Skapaðu góðar minningar með Heimsferðum Þróaði vörur sem breyttu hans eigin lífi Lærðu að tala við gervigreindina og fá svör sem virka! Þykkari augnhár og augabrúnir – vísindin á bak við UKLASH Opnunarhátíð í Ríteil Kids „við erum að drukkna í fötum“ Hætti að þurfa að ryksuga upp hárin eftir hverja sturtu Ný svefnlína sem hjálpar þér að sofna, sofa og vakna hress! Með stimpil upp á ekta spænska matarmenningu Með stimpil upp á ekta spænska matarmenningu Sjá meira