Gamli Liverpool-maðurinn hættur hjá Montpellier eftir að hafa slegist við þjálfarann Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 3. nóvember 2023 12:30 Mamadou Sakho er án félags eftir að hafa yfirgefið Montpellier. getty/John Berry Mamadou Sakho, fyrrverandi leikmaður Liverpool, er hættur hjá franska félaginu Montpellier eftir að hafa lent saman við þjálfara þess.
Sakho og Michel Der Zakarian, þjálfara Montpellier, lenti saman á æfingu í síðustu viku. Sakho brást illa við og rauk af æfingunni þegar Der Zakarian dæmdi ekki aukaspyrnu fyrir hann á æfingunni. Þjálfarinn sagði við Sakho að hann réði því hvort og hvenær hann æfði og kallaði hann grenjuskjóðu. Þá fauk enn meira í Sakho sem greip í hálsmálið á Der Zakarian sem féll við. Sakho hefur einnig verið sakaður um að hafa sparkað í Der Zakarian og hálsmen þjálfarans hafi brotnað í átökunum. Leiðir hafa nú skilið hjá Sakho og Montpellier. Samkvæmt félaginu var allt gert í góðu en annar tónn er í yfirlýsingu sem Sakho sendi frá sér. Þar hafnar hann allri ábyrgð á atvikinu og segist ekki eiga annan kost í stöðunni en að yfirgefa Montpellier. „Þú verður vita hvenær þú átt að ganga frá borði þegar virðing er ekki lengur í boði,“ segir í yfirlýsingu Sakhos. Montpellier fékk Sakho frá Crystal Palace fyrir tveimur árum. Hann lék áttatíu leiki fyrir Liverpool á árunum 2013-17. Sakho lék 29 leiki fyrir franska landsliðið á árunum 2010-18 og skoraði tvö mörk.
Franski boltinn Mest lesið Marlena vann Bakgarðshlaupið: „Ég hljóp bara“ Sport Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Fær sér ís í heita pottinum eftir tæplega 250 kílómetra hlaup Sport Haaland kastaði boltanum í hnakkann á Gabriel eftir jöfnunarmark City Fótbolti Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Enski boltinn Sér eftir að hafa valið Val fram yfir KR Íslenski boltinn Marlena er sigurvegari Bakgarðshlaupsins Sport Refsing fyrir að blóta gæti flýtt fyrir því að Verstappen hætti Formúla 1 Clark slegin í augað í frumraun Körfubolti Liðsfélagi Arnórs með bitför eftir andstæðing Fótbolti Fleiri fréttir Keane segir Arteta að taka lyfin sín Sér eftir að hafa valið Val fram yfir KR Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Glæsimörk Mundu eftir tveggja ára bið Haaland kastaði boltanum í hnakkann á Gabriel eftir jöfnunarmark City Liðsfélagi Arnórs með bitför eftir andstæðing Arteta vildi ekki tjá sig um rauða spjaldið Atlético Madrid gerði enn eitt jafnteflið Uppgjörið og viðtöl: Fram - Fylkir 2-0 | Langþráður sigur Fram setur níu tær í efstu deild að ári Jóhann Berg skoraði en Al Orubah úr leik Enn eitt flautumark Leverkusen og Dortmund steinlá Júlíus lagði upp og Fredrikstad nálgast Evrópusæti Lewandowski skoraði tvö og klikkaði á víti í stórsigri Barcelona Gabbia hetjan í borgarslagnum „Endum leikinn sem betra liðið“ „Mikilvægt að við þorum að vera við sjálfir“ Samantha: Mögulega besti leikur minn á Íslandi „Höfum bara aldrei verið jafn fegnir að fá hálfleik“ Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Leik lokið: Breiðablik - Þór/KA 6-1 | Blikar skoruðu sex og eru áfram á toppnum Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli Tveir varnarmenn KR meiddust á æfingu á Starhaga Kristall áfram í stuði og lagði upp mark Hólmbert með tvö mörk í fyrstu tveimur leikjunum fyrir nýja liðið Lagði upp mark tveimur mínútum eftir að hann kom inn á Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Bellingham kallaði dómarann skíthæl Gerðu grín að Mourinho: Sá grenjandi Sjá meira