Enski boltinn

Fyrsti sigur Sheffield í hús

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Sheffield United fagnaði fyrsta sigri tímabilsins gegn Wolves
Sheffield United fagnaði fyrsta sigri tímabilsins gegn Wolves

Dramatíkin var allsráðandi í leikjum dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Sheffield Utd. sótti sinn fyrsta sigur á tímabilinu með marki úr vítaspyrnu í uppbótartíma, Jóhann Berg spilaði í tapi Burnley gegn Crystal Palace, Mohamed Kudus skoraði glæsimark úr bakfallsspyrnu en Brentford komu til baka og sóttu sigurinn. 

Leikur Brentford gegn West Ham hófst með látum þegar Mark Flekken missteig sig á upphafsmínútunni og gaf gestunum næstum því mark en tókst að bjarga sér fyrir horn. Brentford komst svo snemma yfir með marki frá Neal Maupay en gestirnir voru ekki lengi að jafna metin. Mohamed Kudus skoraði svo eitt glæsilegasta mark tímabilsins með bakfallsspyrnu eftir fyrirgjöf Michaels Antonio. Örfáum mínútum síðar komst West Ham svo yfir eftir að skot Kudus hafnaði í stönginni en Jarred Bowen tók frákastið og kom boltanum í netið.

Brentford jafnaði leikinn enn á ný í upphafi seinni hálfleiks þegar Konstantinos Mavropanos, varnarmaður West Ham, setti boltann óvart í eigið net eftir fyrirgjöf Bryan Mbuemo. Þeir tóku svo forystuna aftur þegar Michael Collins stangaði boltann í netið á 69. mínútu.

Jóhann Berg Guðmundsson var í byrjunarliðinu líkt og í síðasta leik þegar Burnley mátti þola sitt níuna tap á tímabilinu gegn Crystal Palace. Jeffrey Schlupp skoraði fyrsta mark leiksins á 22. mínútu eftir frábæra varnarvinnu og fyrirgjöf frá Jordan Ayew. Burnley liðið spilaði ágætlega í leiknum og hélt boltanum vel sín á milli, tókst að skapa sér fín marktækifæri en markvörður gestanna varði vel í tvígang. Crystal Palace nuddaði svo salti í sárin með marki frá Tyrick Mitchell í uppbótartíma.

Í leik Everton gegn Brighton var það bakvörðurinn Vitalii Mykolenko sem kom Everton yfir. Hann braut leið upp úr varnarlínunni og kom sér fyrir í teignum, fékk svo sendingu frá Dwight McNeil og stangaði boltann að marki, skallinn var varinn en Mykolenko tók eigið frákast og kom boltanum yfir línuna. Brighton jafnaði leikinn skömmu síðar en markið var dæmt af vegna rangstöðu. Þeir héldu svo áfram að þrýsta að marki Everton allan leikinn en uppskáru ekkert fyrr en undir lokinn þegar Ashley Young setti boltann óvart í eigið net og jafnaði leikinn fyrir Brighton.

Wolves óðu í færum allan fyrri hálfleikinn þegar þeir heimsóttu Sheffield United en tókst ekki að koma boltanum yfir línuna. Heimamenn stilltu strengi sína betur saman í seinni hálfleiknum og tóku völdin í leiknum eftir að hafa átt afar erfitt uppdráttar. Þeir ógnuðu marki Wolves og Nathan Archer kom boltanum loks í netið á 72. mínútu Jean-Ricner Bellegarde jafnaði svo leikinn fyrir Wolves á lokamínútu venjulegs leiktíma en Oliver Norwood skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu fyrir Sheffield á 100. mínútu leiksins og tryggði þeim sinn fyrsta sigur á þessu tímabili.

Úrslit dagsins úr ensku úrvalsdeildinni:

Fulham – Man. Utd. 0-1

Brentford – West Ham 3-2

Burnley - Crystal Palace 0-2

Everton – Brighton 1-1

Man. City – Bournemouth 6-1

Sheffield Utd. – Wolves 2-1

Newcastle – Arsenal hefst kl. 17:30


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×