Nýr próteindrykkur slær í gegn á Íslandi DONE 10. nóvember 2023 14:03 Þrjár bragðtegundir eru fáanlegar í öllum helstu matvöruverslunum um land allt, súkkulaði, jarðarberja og cappuccino. DONE er nýr mysupróteindrykkur sem unnin er í samstarfi við stærstu matvælaframleiðendur á heimvísu. Róbert Freyr Samaniego stendur á bak við DONE, 27 ára athafnamaður. Róbert Freyr Samaniego stendur á bak við DONE, 27 ára athafnamaður. „Það er mikil sérstaða að bjóða upp á tilbúna mysupróteindrykki þar sem mysuprótein eru besti amínósýrugjafi sem í boði er. Hugmyndin varð til þegar ég var að æfa fótbolta og las mikið innihaldslýsingar og ég skildi aldrei afhverju allir tilbúnir próteindrykkir innihéldu einungis mjólkurprótein en ekki mysuprótein,“ segir Róbert Freyr. Hann lagðist í rannsóknarvinnu og komst að því að mysuprótein eru mun viðkvæmari fyrir hitun en mjólkurprótein. Hann ákvað þá að ganga sjálfur í málið og þróa próteindrykk með mysupróteini. „Það þurfti því margar prófanir til þess að þetta gengi upp og í raun ótrúlegt að það hafi tekist,“ segir Róbert en drykkurinn er framleiddur í Finnlandi þar sem ekki er til tækjabúnaður á Íslandi. „Margir sérfræðingar töldu ekki gerlegt að hafa viðbætt mysuprótein með þessari aðferð en með mikilli þekkingu reyndra aðila og mikilli þrautseigju tókst að þróa drykk sem er bæði prótein- og trefjaríkur og smakkast hreint út sagt frábærlega. Færustu matvæla og næringarfræðingar í Evrópu hafa einnig komið að þróun á DONE og það var strax ákveðið að þróa drykk sem væri ekki einungis próteinríkur heldur einnig góður fyrir þarmaflóruna. Trefjarnar eru að auki mikilvægt fóður fyrir bakteríuflóruna í þörmum sem tekur þátt í að halda okkur heilsuhraustum. DONE inniheldur enginn gervisætuefni né nein önnur gerviefni,“ útskýrir Róbert. En hvaðan kemur nafnið DONE? „Hugmyndin er að skapa jákvæða tilfiningu þegar þú klárar það sem þú byrjar á. Þú klárar ræktina „DONE“, þú klárar að fara út að labba „DONE“. Þú ert hreint út sagt búin að því sem þú lofaðir sjálfum þér.“ Kostir DONE DONE inniheldur hágæða prótein og trefjar. DONE inniheldur mikið magn mysupróteina sem leysast mun hraðar í líkamanum en mjólkurprótein og því mjög hentugt að fá sér DONE eftir æfingar eða eftir hreyfingu. Trefjarnar eru góðar fyrir þarmaflóruna og stuðla að góðri meltingu. Með trefjum helst blóðsykurinn einnig í betra jafnvægi. DONE inniheldur engin gervisætuefni. DONE er laktósafrír. DONE er léttari í magann en hefðbundnir próteindrykkir. Umbúðir DONE eru umhverfisvænar og DONE er með áföstum tappa unnum úr sykurreyr, sem er hentugt fyrir fólk á ferðinni. Þrjár bragðtegundir verða fáanlegar í öllum helstu matvöruverslunum um land allt, súkkulaði, jarðarberja og cappuccino. Ísland í dag heimsótti Róbert Frey á dögunum og forvitnaðist um ævintýrið á bak við DONE. Matur Heilsa Mest lesið Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Í tjaldútilegu í 53 mánuði samfleytt og tekur fjöllin með í fundarherbergið Atvinnulíf Himinháar kröfur í galtóm bú veitingamanna á Akureyri Viðskipti innlent Rukkað því fólk hékk í rennunni Neytendur Skype heyrir brátt sögunni til Viðskipti erlent Fyrsti kaffibollinn minnir hann á að þrjú börn eru á heimilinu Atvinnulíf Z-kynslóðin fílar ekki stjórnunarstílinn og hættir Atvinnulíf Rukka í „rennuna“ á flugvellinum Neytendur Ekkert verður af frekari loðnuvertíð Viðskipti innlent Skilar samkeppnin okkur samkeppnishæfu matarverði? Neytendur Fleiri fréttir Vetrarferð á verðlaunuðum rafbíl Iðnaðarhurðir sem henta íslenskum aðstæðum Plastkubbahús sem eru íslensk hönnun og framleiðsla Slippfélagið eflir þjónustu með gervigreind Sjá meira
DONE inniheldur hágæða prótein og trefjar. DONE inniheldur mikið magn mysupróteina sem leysast mun hraðar í líkamanum en mjólkurprótein og því mjög hentugt að fá sér DONE eftir æfingar eða eftir hreyfingu. Trefjarnar eru góðar fyrir þarmaflóruna og stuðla að góðri meltingu. Með trefjum helst blóðsykurinn einnig í betra jafnvægi. DONE inniheldur engin gervisætuefni. DONE er laktósafrír. DONE er léttari í magann en hefðbundnir próteindrykkir. Umbúðir DONE eru umhverfisvænar og DONE er með áföstum tappa unnum úr sykurreyr, sem er hentugt fyrir fólk á ferðinni.
Matur Heilsa Mest lesið Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Í tjaldútilegu í 53 mánuði samfleytt og tekur fjöllin með í fundarherbergið Atvinnulíf Himinháar kröfur í galtóm bú veitingamanna á Akureyri Viðskipti innlent Rukkað því fólk hékk í rennunni Neytendur Skype heyrir brátt sögunni til Viðskipti erlent Fyrsti kaffibollinn minnir hann á að þrjú börn eru á heimilinu Atvinnulíf Z-kynslóðin fílar ekki stjórnunarstílinn og hættir Atvinnulíf Rukka í „rennuna“ á flugvellinum Neytendur Ekkert verður af frekari loðnuvertíð Viðskipti innlent Skilar samkeppnin okkur samkeppnishæfu matarverði? Neytendur Fleiri fréttir Vetrarferð á verðlaunuðum rafbíl Iðnaðarhurðir sem henta íslenskum aðstæðum Plastkubbahús sem eru íslensk hönnun og framleiðsla Slippfélagið eflir þjónustu með gervigreind Sjá meira