„Leikur gegn Ísrael mjög álitlegur kostur fyrir okkur“ Aron Guðmundsson skrifar 23. nóvember 2023 12:47 Jóhannes Karl er aðstoðarþjálfari Age Hareide hjá íslenska karlalandsliðinu í fótbolta Vísir/Getty Jóhannes Karl Guðjónsson, aðstoðarlandsliðsþjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, segir leið liðsins að EM sæti í gegnum umspil í mars á næsta ári vera leið sem hægt sé að sætta sig við. Ísland mun mæta Ísrael í undanúrslitum umspilsins.
Dregið var í umspilið í höfuðstöðvum UEFA í Nyon í Sviss fyrr í morgun þar sem að Ísland dróst í B-leið umspilsins og mun mæta Ísrael í undanúrslitum og annað hvort Bosníu & Herzegóvínu eða Úkraínu í mögulegum úrslitaleik ef sigur vinnst gegn Ísrael. Getum við ekki bara verið nokkuð ánægð með þennan drátt? „Jú ég held að þetta sé eitthvað sem við getum sætt okkur við,“ segir Jóhannes Karl í samtali við Vísi. „Maður hefði alltaf frekar vilja fara í þennan B-pott. Við enduðum þar og leikur á móti Ísrael er bara mjög álitlegur kostur fyrir okkur.“ Ísland mun ekki leika á heimavelli í umspilinu en líklegt þykir að leikur liðsins gegn Ísrael í undanúrslitum muni ekki fara fram í Ísrael sökum ólgunnar fyrir botni Miðjarðarhafs. „Við fengum því miður ekki möguleikann á því að fá heimaleik í seinni leiknum og lendum því í því að spila annað hvort við Bosníu & Herzegóvínu eða Úkraínu í úrslitunum. Bæði þessi lið eru hörku lið en Úkraína kannski aðeins sterkari. Við ætlum okkur náttúrulega að gera þetta að tveggja leikja einvígi. Ætlum okkur áfram úr viðureign okkar gegn Ísrael og þar verður væntanlega spilað á hlutlausum velli, allavegana eins og staðan er núna og það sama gæti gilt um mögulegan úrslitaleik gegn Úkraínu.“
Landslið karla í fótbolta EM 2024 í Þýskalandi Þjóðadeild karla í fótbolta Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Fleiri fréttir Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Framlengir í Vesturbænum Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Loksins sigur hjá Tottenham Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Glódís Perla og félagar áfram með fullt hús á toppnum Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum UEFA gefur Infantino lokafrest til að afhenta lykilskjöl „Hann kvartar yfir öllu“ Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Norska tromman á heimsmeistaramótinu seldist fyrir margar milljónir Segir félagið ekki vera að styðja hann lengur Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Sjá meira