Real gerði nóg Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 2. desember 2023 20:00 Fyrirliðinn Toni Kroos lagði upp fyrra mark Rea. EPA-EFE/SERGIO PEREZ Real Madríd vann 2-0 sigur á Granada í La Liga, spænsku úrvalsdeild karla í knattspyrnu. Real var ljósárum betra en Granada í dag en gestirnir voru 29 prósent með boltann og áttu aðeins eitt skot að marki, það rataði ekki á markrammann. Heimamenn létu þó duga að skora tvö mörk. Það fyrra gerði Brahim Díaz á 26. mínútu eftir undirbúning Toni Kroos. Þegar tæp klukkustund var liðin skoraði Rodrygo annað mark Real, staðan orðin 2-0 og reyndust það lokatölur leiksins. Sigurinn lyftir Real Madríd á toppinn með 38 stig að loknum 15 leikjum líkt og Girona sem vann 2-1 sigur á Valencia fyrr í dag. Cristhian Stuani með bæði mörk Girona sem neitar að gefast upp í toppbaráttunni. Spænski boltinn Fótbolti
Uppgjörið: Víkingur - Fram 5-0 | Elías Már með þrennu í stórsigri Víkings í toppslagnum Íslenski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: Breiðablik - KA 3-1| Mikilvægur sigur Blika en vandræði KA halda áfram Íslenski boltinn
Uppgjörið: ÍBV-Stjarnan 2-1| Endurkomusigur Eyjamanna og uppskerubrestur Stjörnunnar Íslenski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: FH - Þór Ak. 1-1| Úrslit sem gera lítið fyrir bæði lið í fallbaráttunni Íslenski boltinn