Selena Gomez sögð í sambandi með vini Justin Bieber Bjarki Sigurðsson skrifar 8. desember 2023 10:26 Selena Gomez er ein vinsælasta söng- og leikkona heims. Getty/Kevin Winter Söng- og leikkonan Selena Gomez er sögð hafa staðfest samband sitt við tónlistarmanninn Benny Blanco á samfélagsmiðlum í vikunni. Blanco er góður vinur fyrrverandi kærasta Gomez, Justin Bieber, og hafa þeir nokkrum sinnum gert tónlist saman.
Page Six greinir frá því að Gomez hafi birt ummæli við færslu á Instagram þar sem aðdáendur hennar velta fyrir sér hvort hún sé komin í samband. Undir færsluna skrifaði hún „facts“ eða „staðreyndir“. Þá „like-aði“ hún færslu frá slúðursíðu sem sló því upp að hún væri mögulega í sambandi með Blanco. Gomez birti fleiri ummæli þar sem hún virtist staðfesta samband sitt og Blanco áður en hún birti mynd af sér og manni sem er sagður vera Blanco en það sést einungis í hluta andlits hans. Skjáskot af færslunni sem Gomez birti í gær. Blanco og Gomez unnu saman að laginu I Can't Get Enough árið 2021 og hafa verið náin síðan þá. Hann hefur framleitt marga af helstu slögurum heims, til að mynda Eastside með Halsey og Khalid og Lonely með Justin Bieber. Þá hefur hann komið að gerð enn fleiri laga, eins og Diamonds með Rihönnu og California Gurls með Katy Perry. Blanco er góður vinur Justin Bieber sem er fyrrverandi kærasti Gomez. Þau byrjuðu fyrst saman árið 2010 og áttu eftir að vera sundur og saman næstu átta árin áður en Bieber giftist eiginkonu sinni, Haily Baldwin. Benny Blanco er einn vinsælasti tónlistarframleiðandi heims. Getty/Matt Winkelmeyer
Tónlist Ástin og lífið Hollywood Bandaríkin Mest lesið Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lífið Aldraður og moldaður Tom Cruise til bjargar jörðinni Bíó og sjónvarp Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Lífið Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Lífið Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Tónlist Selja herrasetur í Þingholtunum Lífið Lesbíur selja litríka íbúð Lífið Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Lífið Uppskrift: Bragðmikill grillaður kjúklingaborgari að hætti Rakelar Maríu Lífið samstarf Fleiri fréttir David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin sögð komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Sjá meira