Fótbolti

Heimsmeistararnir í fyrsta sinn í efsta sæti heimslistans

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Spánverjar tróna á toppi heimslista FIFA.
Spánverjar tróna á toppi heimslista FIFA. Patricia Pérez Ferraro/SOPA Images/LightRocket via Getty Images

Spánverjar, heimsmeistarar kvenna í fótbolta, tróna í fyrsta sinn í sögunni á toppi heimslista Alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA.

Spánverjar tryggðu sér sinn fyrsta heimsmeistaratitil í kvennaflokki í sögunni með 1-0 sigri gegn Englendingum í úrlsitum HM í sumar og tróna nú á toppi nýs heimslista FIFA sem kom út í dag.

Spænska liðið stekkur upp um eitt sæti, líkt og Bandaríkin sem sitja í öðru sæti listans. Frakkar eru hástökkvarar efstu tíu þjóðanna og fara upp um tvö sæti, úr fimmta og upp í það þriðja.

Englendingar sitja hins vegar í stað í fjórða sæti listans, en Svíar, sem voru á toppnum á síðasta lista, falla niður í fimmta sæti. Þýskaland, Holland, Japan, Norður-Kórea og Kanada eru einnig á topp tíu.

Stelpurnar okkar í íslenska landsliðinu falla niður um eitt sæti og sitja nú í 15. sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×