Ofbeldishrina tveggja táningspilta: „Við erum að fara að drepa ykkur alla“ Jón Þór Stefánsson skrifar 19. janúar 2024 22:01 „Þú veist þið eruð dauðir þegar ég kem til ak“ sagði í hótun annars piltsins. „Ak“ þýðir Akureyri. Vísir/Tryggvi Tveir táningspiltar voru sakfelldir í Héraðsdómi Norðurlands eystra í desember á nýliðnu ári fyrir fjölda brota líkt og líkamsárásir og hótanir.
Annar þeirra var dæmdur fyrir þrjár líkamsárásir og hlaut sex mánaða dóm, skilorðsbundin til tveggja ára. Refsingu hins mannsins, sem var sakfelldur fyrir tvær líkamsárásir, var frestað haldi hann almennt skilorð í tvö ár. Í dómnum kemur fram að báðir piltarnir verði bráðlega átján ára, en að þeir hafi verið fimmtán og sextán þegar brotin hafi verið framin. Litið var til ungs aldurs þeirra við ákvörðun refsingar á hendur þeim. Ógnvænlegar lýsingar Ákæruliðir málsins voru þónokkrir. Hvar brot þeirra voru framin kemur ekki skýrt fram í hverjum ákærulið, en þau virðast flest hafa átt sér stað á norðurlandi, bæði á Akureyri og í Húsavík. Sá fyrsti varðar hótanir sem sá sem fékk þyngri dóminn sendi í öðrum ungum einstaklingi í skilaboðum á samfélagsmiðlinum Instagram í maímánuði 2021. Þar sendi hann meðal annars: „Br ætla að drepa þig fyrir að lemja litla frænda minn“ og „Þú kærir og ég ætla ekki að hafa á saka skránni minni að ég lamdi 05 illa mep vopni“ Þá var hinn pilturinn ákærður fyrir líkamsárás sem átti sér stað í október 2022. Þar var honum gefið að sök að taka annan einstakling hálstaki, leggja hníf að hálsi hans og slá hann í höfuðið með leikfangabyssu úr plasti. Með því þótti hann hafa vakið ótta hjá brotaþolanum um líf sitt og heilbrigði. Spörkuðu í liggjandi mann Næsti ákæruliður varðaði líkamsárás sem piltarnir frömdu saman í maí 2021. Í lýsingum á árásinni segir að þeir hafi kýlt annan einstakling með krepptum hnefum sem varð til þess að brotaþolinn féll til jarðar. Á meðan hann lá eru drengirnir sagðir hafa haldið árás sinni áfram með því kýla, sparka og stappa á brotaþola. Þá var annar þeirra ákærður fyrir samskonar árás sem var framin í júní 2021 í félagi við ósakhæfan einstakling. Piltarnir voru ákærðir fyrir þjófnað, með því að stela Iphone-síma úr verslun í Glerártorgi á Akureyri. Ákæruvaldið féll frá því að ákæra þann sem fékk þyngri dóminn fyrir þjófnaðinn, en sá sem fékk vægari dóminn játaði að hafa framið það. „Verð alltaf laus þangað til ég næ honum“ Pilturinn sem fékk þyngri dóminn var einnig ákærður fyrir fjölda hótanna í garð stjúpmóður drengs, þar sem hann talaði um að hann myndi beita drenginn grófu ofbeldi. Hótanir hans eru sagðar hafa vakið ótta hjá konunni um líf og heilbrigði stjúpsonar síns. Hótanirnar bárust í apríl 2022 bæði í gegnum skilaboð á Messenger og í gegnum myndsímtal. Á meðal hótanna sem hann sendi á Messenger voru: „Við erum að fara að drepa ykkur alla ef þið farið ekki utur husinu“ og „Þú veist þið eruð dauðir þegar ég kem til ak ætla ég að taka félaga minn og slampa hausnum ykkar í jorðina þangað til ég sé heilan ykkar lekka á golfinu“ Og á meðal þess sem hann sagði við stjúpmóðurina í myndsímtali var eftirfarandi: „Já, já, þetta er allt í lagi, það skiptir ekki máli þó þú hringir á lögregluna, það er ekki eins og þeir séu að fara að setja mig í einhvern klefa fyrir eitthvert brot sem ég, ég braut ekki nein lög. Ég er ekki búin að gera honum neitt. Ég verð alltaf laus þangað til ég næ honum, fattarðu mig? Skilurðu mig?“ Dæmt var í málinu í Héraðsdómi norðurlands eystra. Vísir/Kolbeinn Síðasti ákæruliðurinn varðaði líkamsárás piltsins þar sem hann var ákærður fyrir þriðju líkamsárásina sem hann framdi, og þá fjórðu í heildina. Þar var honum gefið að sök að hafa ráðist á annan einstakling með hnefahöggum fyrir utan verslun á Akureyri í ágúst 2021. Hefnd með langan aðdraganda Í niðurstöðukafla dómsins segir pilturinn, sem fékk þyngri dóminn, hafi réttlætt brot sín með því að segja að brotaþolarnir hafi gert eitthvað á hans hlut eða annarra sem tengjast honum. Ekki hafi verið um „skyndilegt stjórnleysi“ að ræða heldur hefnd sem átti sér í einhverjum tilvikum langan aðdraganda. Annar piltanna, sá sem hlaut vægari dóminn, játaði öll sín brot, en hinn ýmist játaði og neitaði sök, en var sakfelldur í öllum ákæruliðum. Bótagreiðslur sem mönnunum er gert að greiða fimm brotaþolum málsins hljóða samanlagt upp á þrjár milljónir króna. Sá sem fékk þyngri dóminn þarf að greiða rúma sjö og hálfa milljón króna í sakarkostnað og sá sem fékk vægari dóminn þarf að greiða tæplega fjórar og hálfa milljón. Líkt og áður segir hlaut annar piltanna sex mánaða skilorðsbundin dóm, og refsingu hins var frestað haldi hann skilorð. Í dómnum segir að mikilvægt sé að drengirnir fái viðeigandi meðferð við vandamálum sem þeir glími við.
Dómsmál Akureyri Ofbeldi gegn börnum Stafrænt ofbeldi Mest lesið „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Innlent „Þú værir í fangelsi ef ekki væri fyrir mig“ Erlent Leita Íslendings í Taílandi Innlent Steingrímur Ari Arason er látinn Innlent Mótmæli og átök vegna dauða Henry Nowak Erlent Gerðu árásir á eyju í Hormússundi í nótt Erlent Ari missti af fyrsta fundinum Innlent Sundlaugar opnar til miðnættis og ótakmörkuð bílastæði Innlent Þingnefnd breytir ekki forgangsröð jarðganga Innlent Áslaug Arna hættir á Alþingi Innlent Fleiri fréttir Áslaug Arna hættir á Alþingi Þota föst á Tenerife vegna áreksturs Leita Íslendings í Taílandi Steingrímur Ari Arason er látinn Fjögurra flokka meirihluti í Norðurþingi „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Þingnefnd breytir ekki forgangsröð jarðganga Þórkatla slökkvi vonarneistann með nýjum samningi Lilja Björg ráðin sveitarstjóri Dalabyggðar Kærð fyrir að draga sér ríflega tólf milljónir úr dánarbúi Sjálfstæðismenn formenn sjö ráða af átta Baldur og Herjólfur sigla til Eyja Sundlaugar opnar til miðnættis og ótakmörkuð bílastæði Dýrum stefnt í hættu Unnur Brá sveitarstjóri í Borgarbyggð og Skorradalshreppi Beri skylda að skila Dananum hugsanlega á Þingvöllum Tímamót í borginni, innbrot í kjúklingabú og forritari á barnsaldri „Ávirðingarnar sem þetta fólk lét út úr sér eru því sjálfu til skammar“ Sumaráætlun Herjólfs frestað Leit að eftirmanni Höllu Bergþóru hafin Fær annan skóla undir sinn væng Faldi rúmar þrjátíu milljónir í peningaskáp Skjálftahrinan mallar enn Ari missti af fyrsta fundinum Kourani gæti losnað eftir þrjá mánuði eftir lagabreytingu Situr rúma viku á þingi fyrir sumarfrí „Heiður lífs míns að vera borgarstjóri“ Fordæma innbrot í Reykjabú Mun örugglega leita ráða hjá Heiðu „Greiddi smyglurum verulegar upphæðir til að komast á leiðarenda“ Sjá meira