Króatar tryggja sér sæti í umspili Ólympíuleikanna með því að tapa lokaleiknum sínum á móti Þýskalandi. Það er ekki oft sem lið græða á því að tapa leik en svo gæti farið í þessu tilfelli.
Tapi Króatar leiknum þá tryggja Þjóðverjar sér um leið sæti í undanúrslitunum. Þetta eru því eiginlega bestu úrslitin fyrir bæði lið.
Þess ber þó að geta að leikur Króatíu og Þýskalands er síðasti leikur morgundagsins, og því mögulegt að Þjóðverjar verði þegar komnir inn í undanúrslit ef Ísland vinnur Austurríki og Frakkland vinnur Ungverjaland.

Eftir sigurinn á Ungverjum í gær eru lærisveinar Alfreðs Gíslasonar einum sigri frá undanúrslitunum. Þeir eru í keppni um síðasta sætið við Ungverja og Austurríkismenn. Þýskaland er stigi á undan og því með málin í sínum höndum en hinar þjóðirnar þurfa að treyst á hjálp frá Króötum.
En hvernig stendur á því að Króatar gætu grætt á því að tapa þessum lokaleik?
Ástæðan er sú að þeir er eru næstir inn í umspilssæti fyrir Ólympíuleikana, út frá árangri á síðasta heimsmeistaramóti.
Það er einn öruggur farseðill á ÓL í boði á EM, fyrir Evrópumeistarana (eða næsta lið á eftir Danmörku og Frakklandi sem eru þegar komin inn á ÓL).
Austurríki er eina liðið sem enn getur náð þessum farseðli á ÓL, sem ekki er þegar komið inn á ÓL eða í ÓL-umspilið. Það vilja Króatar ekki að gerist því að þeir eru næstir inn í ÓL-umspilið út frá árangri á síðasta HM, og fá það sæti ef að lið sem var komið inn í umspilið (Svíþjóð, Þýskaland eða Ungverjaland) kemst beint á ÓL í gegnum EM.
Eftir standa síðan tvö laus sæti í umspilið hjá þeim þjóðum sem eru ekki þegar komnar í umspilið eða á ÓL. Íslenska landsliðið dreymir um annað þeirra sæta.