Lykilsönnunargagn ófundið í lífshættulegri skotárás Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 5. febrúar 2024 09:58 Blóð úr hinum skotna í anddyri fjölbýlishúss við Silfratjörn í Úlfarsárdal. Stöð 2/Arnar Héraðssaksóknari hefur ákært Shokri Keryo, karlmann á 21. aldursári, fyrir tilraun til manndráps við Silfratjörn í Úlfarsárdal í nóvember síðastliðnum. Miskabótakrafa fimm einstaklinga sem ýmist urðu fyrir skoti eða stóð ógn af skotunum hljóðar upp á samanlagt níu milljónir króna. Skotvopnið er ófundið. Shokri er ákærður fyrir tilraun til manndráps, hættubrot og eignaspjöll með því að hafa aðfaranótt fimmtudagsins 2. nóvember í fyrra, á gatnamótum Skyggnisbrautar og Silfratjarnar, skotið fjórum skotum í áttina að fjórum ónafngreindum einstaklingum. Fram kemur í ákærunni að skotvopnið sem beitt var og væri því lykilsönnunargagn í málinu sé ófundið. Þar segir að Shokri hafi beint óþekktu skotvopni með níu millimetra hlaupi í átt að þeim þar sem þeir stóðu utandyra við fjölbýlishús við Silfratjörn og hleypt af byssunni. Skot hafnaði í fæti karlmanns, annað í bifreið sem stóð framan við húsið og tvö í íbúðarhúsnæði handan götunnar. Fram kom í gæsluvarðhaldsúrskurði yfir Shokri á dögunum að hann hefði skotið úr bíl. Sjö voru upphaflega handteknir vegna málsins, sex úrskurðaðir í gæsluvarðhald, fljótlega fækkaði þeim niður í tvo og enn situr Shokri í gæsluvarðhaldi vegna málsins. Sá sem varð fyrir skoti, Gabríel Douane sem komist hefur endurtekið í kast við lögin undanfarin ár, hlaut sár á hægri sköflung. Þá brotnaði afturrúða og myndaðist dæld í afturhlera bílsins. Rúða botnaði í íbúð fjölskyldu og hafnaði skotið í vegg í íbúð þar sem fjögurra manna fjölskylda svaf, þar á meðal fjögurra og átta ára börn. Með háttsemi sinni er Shokri sagður hafa stofnað lífi og heilsu fólksins í augljósan háska á ófyrirleitinn hátt. Krafist er 3,5 milljóna króna í miskabætur fyrir þann sem varð fyrir skoti. Þrír aðrir karlmenn sem skotið var í áttina að fara ýmist fram á eina, eina og hálfa eða tvær milljónir króna í miskabætur. Þá fer kona, sem að líkindum var íbúi í íbúðinni þar sem rúðan brotnaði, fram á milljón króna í miskabætur. Mikið af púðri á peysu og hönskum Shokri Í nýlegum gæsluvarðhaldsúrskurði yfir Shokri segir að lögregla hafi aflað upptaka í grennd við árásina og rakið ferðir mannsins og þeirra sem voru með honum. Fullyrt er að Shokri þekkist á upptökum og að fyrir liggi framburðir um að hann hafi verið á vettvangi og skotið úr byssunni. Að því sem fram kemur í úrskurðinum var Shokri ekki einn í bílnum. Jafnframt kemur fram að Shokri hafi fyrir árásina haft aðgang að skotvopni sambærilegu því sem er talið að hafi verið notað við árásina. Niðurstöður úr DNA rannsókn og púðurleyfarannsókn benda til þess að mikið var af púðurleyfum á peysu mannsins og á hönskum sem maðurinn klæddist samkvæmt DNA rannsókninni. Í skýrslu sem var tekin af Shokri daginn eftir árásina kvaðst hann ekkert vita um málið. Hann sagði jafnframt að það kæmi lögreglu ekki við hvar hann hefði verið nóttina þegar árásin átti sér stað. Í annarri skýrslutöku nokkrum dögum síðar neitaði hann að mestu að tjá sig. Það var síðan í enn einni skýrslutöku í janúar þar sem niðurstöður púðurrannsóknanna voru bornar undir hann. Hann kvaðst hafa mátað hanskana en neitaði að tjá sig að öðru leyti. Shokri bar fyrir sig að hafa setið í framsæti bílsins og vísar til framburðs eins brotaþola mannsins sem sagði að skotið hafi verið úr aftursæti bílsins. Bent er á að hanskarnir sem um ræðir hafi fundist á heimili annars einstaklings, og að DNA úr Shokri væri vegna þess að hann hafi handleikið þá. Þar að auki er bent á að mun minni púðurleyfar hafi verið á peysunni en á hönskunum. Litlar upplýsingar er að finna um ákærða Shokri Keryo á vefmiðlum. Hann virðist óvirkur á samfélagsmiðlum og ekki er að finna dóm á hendur honum í gagnaskrá dómstólanna. Málið verður þingfest við Héraðsdóm Reykjavíkur á morgun. Veistu meira um málið? Vísir tekur við öllum ábendingum á netfangið ritstjorn@visir.is eða í tölvupósti á einstaka blaðamenn. Fullum trúnaði er heitið. Skotárás á Silfratjörn Lögreglumál Dómsmál Reykjavík Tengdar fréttir Grunaður skotmaður í Silfratjörn segist hafa mátað hanska útataða púðri Maður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 23. febrúar næstkomandi vegna skotárásarinnar sem framin var í Silfratjörn í Úlfarsárdal í byrjun nóvembermánaðar. Landsréttur hefur staðfest úrskurð héraðsdóms þess efnis og birt hann á vef sínum. 31. janúar 2024 09:43 Hnífstunguárás í nótt sögð tengjast árásinni á Litla-Hrauni Hnífstunguárás sem framin var í nótt tengist annarri árás á Litla-Hrauni í gær. Þetta herma heimildir Ríkisútvarpsins. Eggvopni var sömuleiðis beitt í árásinni á Litla-Hrauni og sú árás er sögð tengjast skotárásinni í Úlfarsárdal í byrjun mánaðar. 24. nóvember 2023 09:21 Þremur sleppt en gæsluvarðhald tveggja framlengt Tveir hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald í tengslum við skotárásina í Silfratjörn í Úlfarsárdal í byrjun mánaðar. Þremur var sleppt úr haldi. 22. nóvember 2023 17:01 Mest lesið Vaktin: Hin grunuðu talin tengjast tálbeituhópum Innlent Bræður og mamma þeirra svara til saka í tugmilljóna máli Innlent Maður handtekinn en kona flúði í máli sem tengist andlátinu Innlent Fimm í haldi vegna rannsóknar á andláti Innlent Stúlkan er fundin Innlent „Mér finnst ekki mitt að svara fyrir hvað hún gerir“ Innlent „Þetta er bara klúður“ Innlent Ferðalagið að engu orðið vegna reglna um trans fólk Innlent Heiða liggur enn undir feldi Innlent Duterte sakaður um glæpi gegn mannkyninu og handtekinn í Manila Erlent Fleiri fréttir Tveir kaflar að Látrabjargi lagfærðir fyrir almyrkvann Svefnlyf ávanabindandi og auki hættu á heilabilun Framstuðarinn horfinn í morgun: „Ég á enga óvini svo ég viti til“ Vinna hafin við nýja göngubrú í Vogahverfinu „Núna reynir auðvitað á Rússa“ Nokkur hinna handteknu tengjast tálbeituhópum Manndráp, varnardrónar og umferðaröngþveiti við Látrabjarg Vaktin: Hin grunuðu talin tengjast tálbeituhópum Maður handtekinn en kona flúði í máli sem tengist andlátinu Fimm í haldi vegna rannsóknar á andláti Rúmmál kviku ekki verið meira frá því goshrinan hófst 2023 Skoða að taka í notkun ómannaðan eftirlitskafbát Níu af þrettán styrkjum fara í kjördæmi ráðherra Bjarni Þór segir Höllu keyra á aldursfordómum í kosningabaráttu Telur tillögu um afnám áminningar á leið í ruslið Á batavegi eftir slysið í Akraneshöfn Starfsmenn á tveimur stöðum veikst vegna myglu Ekki þverfótað fyrir erlendum blaðamönnum í Nuuk Stúlkan er fundin Langhæsti húsafriðunarstyrkurinn til Landakotskirkju Bein útsending: Ásgeir og Þórarinn ræða skýrslur peningastefnunefndar Tvær konur fengu þunga dóma fyrir kókaínsmygl Eldfjallafræðingur segist frekar á því að goshrinunni sé lokið Ferðalagið að engu orðið vegna reglna um trans fólk „Mér finnst ekki mitt að svara fyrir hvað hún gerir“ Bankastrætismenn fengu nei frá Hæstarétti Áratuga skuldahali, gosspá og Mario í beinni Hópnauðgunarmál fyrir Hæstarétt Bræður og mamma þeirra svara til saka í tugmilljóna máli Margrét fer fyrir eftirliti með störfum lögreglu Sjá meira
Shokri er ákærður fyrir tilraun til manndráps, hættubrot og eignaspjöll með því að hafa aðfaranótt fimmtudagsins 2. nóvember í fyrra, á gatnamótum Skyggnisbrautar og Silfratjarnar, skotið fjórum skotum í áttina að fjórum ónafngreindum einstaklingum. Fram kemur í ákærunni að skotvopnið sem beitt var og væri því lykilsönnunargagn í málinu sé ófundið. Þar segir að Shokri hafi beint óþekktu skotvopni með níu millimetra hlaupi í átt að þeim þar sem þeir stóðu utandyra við fjölbýlishús við Silfratjörn og hleypt af byssunni. Skot hafnaði í fæti karlmanns, annað í bifreið sem stóð framan við húsið og tvö í íbúðarhúsnæði handan götunnar. Fram kom í gæsluvarðhaldsúrskurði yfir Shokri á dögunum að hann hefði skotið úr bíl. Sjö voru upphaflega handteknir vegna málsins, sex úrskurðaðir í gæsluvarðhald, fljótlega fækkaði þeim niður í tvo og enn situr Shokri í gæsluvarðhaldi vegna málsins. Sá sem varð fyrir skoti, Gabríel Douane sem komist hefur endurtekið í kast við lögin undanfarin ár, hlaut sár á hægri sköflung. Þá brotnaði afturrúða og myndaðist dæld í afturhlera bílsins. Rúða botnaði í íbúð fjölskyldu og hafnaði skotið í vegg í íbúð þar sem fjögurra manna fjölskylda svaf, þar á meðal fjögurra og átta ára börn. Með háttsemi sinni er Shokri sagður hafa stofnað lífi og heilsu fólksins í augljósan háska á ófyrirleitinn hátt. Krafist er 3,5 milljóna króna í miskabætur fyrir þann sem varð fyrir skoti. Þrír aðrir karlmenn sem skotið var í áttina að fara ýmist fram á eina, eina og hálfa eða tvær milljónir króna í miskabætur. Þá fer kona, sem að líkindum var íbúi í íbúðinni þar sem rúðan brotnaði, fram á milljón króna í miskabætur. Mikið af púðri á peysu og hönskum Shokri Í nýlegum gæsluvarðhaldsúrskurði yfir Shokri segir að lögregla hafi aflað upptaka í grennd við árásina og rakið ferðir mannsins og þeirra sem voru með honum. Fullyrt er að Shokri þekkist á upptökum og að fyrir liggi framburðir um að hann hafi verið á vettvangi og skotið úr byssunni. Að því sem fram kemur í úrskurðinum var Shokri ekki einn í bílnum. Jafnframt kemur fram að Shokri hafi fyrir árásina haft aðgang að skotvopni sambærilegu því sem er talið að hafi verið notað við árásina. Niðurstöður úr DNA rannsókn og púðurleyfarannsókn benda til þess að mikið var af púðurleyfum á peysu mannsins og á hönskum sem maðurinn klæddist samkvæmt DNA rannsókninni. Í skýrslu sem var tekin af Shokri daginn eftir árásina kvaðst hann ekkert vita um málið. Hann sagði jafnframt að það kæmi lögreglu ekki við hvar hann hefði verið nóttina þegar árásin átti sér stað. Í annarri skýrslutöku nokkrum dögum síðar neitaði hann að mestu að tjá sig. Það var síðan í enn einni skýrslutöku í janúar þar sem niðurstöður púðurrannsóknanna voru bornar undir hann. Hann kvaðst hafa mátað hanskana en neitaði að tjá sig að öðru leyti. Shokri bar fyrir sig að hafa setið í framsæti bílsins og vísar til framburðs eins brotaþola mannsins sem sagði að skotið hafi verið úr aftursæti bílsins. Bent er á að hanskarnir sem um ræðir hafi fundist á heimili annars einstaklings, og að DNA úr Shokri væri vegna þess að hann hafi handleikið þá. Þar að auki er bent á að mun minni púðurleyfar hafi verið á peysunni en á hönskunum. Litlar upplýsingar er að finna um ákærða Shokri Keryo á vefmiðlum. Hann virðist óvirkur á samfélagsmiðlum og ekki er að finna dóm á hendur honum í gagnaskrá dómstólanna. Málið verður þingfest við Héraðsdóm Reykjavíkur á morgun. Veistu meira um málið? Vísir tekur við öllum ábendingum á netfangið ritstjorn@visir.is eða í tölvupósti á einstaka blaðamenn. Fullum trúnaði er heitið.
Veistu meira um málið? Vísir tekur við öllum ábendingum á netfangið ritstjorn@visir.is eða í tölvupósti á einstaka blaðamenn. Fullum trúnaði er heitið.
Skotárás á Silfratjörn Lögreglumál Dómsmál Reykjavík Tengdar fréttir Grunaður skotmaður í Silfratjörn segist hafa mátað hanska útataða púðri Maður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 23. febrúar næstkomandi vegna skotárásarinnar sem framin var í Silfratjörn í Úlfarsárdal í byrjun nóvembermánaðar. Landsréttur hefur staðfest úrskurð héraðsdóms þess efnis og birt hann á vef sínum. 31. janúar 2024 09:43 Hnífstunguárás í nótt sögð tengjast árásinni á Litla-Hrauni Hnífstunguárás sem framin var í nótt tengist annarri árás á Litla-Hrauni í gær. Þetta herma heimildir Ríkisútvarpsins. Eggvopni var sömuleiðis beitt í árásinni á Litla-Hrauni og sú árás er sögð tengjast skotárásinni í Úlfarsárdal í byrjun mánaðar. 24. nóvember 2023 09:21 Þremur sleppt en gæsluvarðhald tveggja framlengt Tveir hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald í tengslum við skotárásina í Silfratjörn í Úlfarsárdal í byrjun mánaðar. Þremur var sleppt úr haldi. 22. nóvember 2023 17:01 Mest lesið Vaktin: Hin grunuðu talin tengjast tálbeituhópum Innlent Bræður og mamma þeirra svara til saka í tugmilljóna máli Innlent Maður handtekinn en kona flúði í máli sem tengist andlátinu Innlent Fimm í haldi vegna rannsóknar á andláti Innlent Stúlkan er fundin Innlent „Mér finnst ekki mitt að svara fyrir hvað hún gerir“ Innlent „Þetta er bara klúður“ Innlent Ferðalagið að engu orðið vegna reglna um trans fólk Innlent Heiða liggur enn undir feldi Innlent Duterte sakaður um glæpi gegn mannkyninu og handtekinn í Manila Erlent Fleiri fréttir Tveir kaflar að Látrabjargi lagfærðir fyrir almyrkvann Svefnlyf ávanabindandi og auki hættu á heilabilun Framstuðarinn horfinn í morgun: „Ég á enga óvini svo ég viti til“ Vinna hafin við nýja göngubrú í Vogahverfinu „Núna reynir auðvitað á Rússa“ Nokkur hinna handteknu tengjast tálbeituhópum Manndráp, varnardrónar og umferðaröngþveiti við Látrabjarg Vaktin: Hin grunuðu talin tengjast tálbeituhópum Maður handtekinn en kona flúði í máli sem tengist andlátinu Fimm í haldi vegna rannsóknar á andláti Rúmmál kviku ekki verið meira frá því goshrinan hófst 2023 Skoða að taka í notkun ómannaðan eftirlitskafbát Níu af þrettán styrkjum fara í kjördæmi ráðherra Bjarni Þór segir Höllu keyra á aldursfordómum í kosningabaráttu Telur tillögu um afnám áminningar á leið í ruslið Á batavegi eftir slysið í Akraneshöfn Starfsmenn á tveimur stöðum veikst vegna myglu Ekki þverfótað fyrir erlendum blaðamönnum í Nuuk Stúlkan er fundin Langhæsti húsafriðunarstyrkurinn til Landakotskirkju Bein útsending: Ásgeir og Þórarinn ræða skýrslur peningastefnunefndar Tvær konur fengu þunga dóma fyrir kókaínsmygl Eldfjallafræðingur segist frekar á því að goshrinunni sé lokið Ferðalagið að engu orðið vegna reglna um trans fólk „Mér finnst ekki mitt að svara fyrir hvað hún gerir“ Bankastrætismenn fengu nei frá Hæstarétti Áratuga skuldahali, gosspá og Mario í beinni Hópnauðgunarmál fyrir Hæstarétt Bræður og mamma þeirra svara til saka í tugmilljóna máli Margrét fer fyrir eftirliti með störfum lögreglu Sjá meira
Grunaður skotmaður í Silfratjörn segist hafa mátað hanska útataða púðri Maður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 23. febrúar næstkomandi vegna skotárásarinnar sem framin var í Silfratjörn í Úlfarsárdal í byrjun nóvembermánaðar. Landsréttur hefur staðfest úrskurð héraðsdóms þess efnis og birt hann á vef sínum. 31. janúar 2024 09:43
Hnífstunguárás í nótt sögð tengjast árásinni á Litla-Hrauni Hnífstunguárás sem framin var í nótt tengist annarri árás á Litla-Hrauni í gær. Þetta herma heimildir Ríkisútvarpsins. Eggvopni var sömuleiðis beitt í árásinni á Litla-Hrauni og sú árás er sögð tengjast skotárásinni í Úlfarsárdal í byrjun mánaðar. 24. nóvember 2023 09:21
Þremur sleppt en gæsluvarðhald tveggja framlengt Tveir hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald í tengslum við skotárásina í Silfratjörn í Úlfarsárdal í byrjun mánaðar. Þremur var sleppt úr haldi. 22. nóvember 2023 17:01