Grænlendingar hefja beint flug til Kanada Kristján Már Unnarsson skrifar 11. febrúar 2024 12:12 Dash 8-flugvél Air Greenland á flugvellinum í Nuuk. Friðrik Þór Halldórsson Air Greenland, þjóðarflugfélag Grænlendinga, hyggst hefja áætlunarflug milli Grænlands og Norður-Kanada í sumar. Flogið verður milli höfuðstaðarins Nuuk og bæjarins Iqaluit, höfuðstaðar Nunavut, sjálfsstjórnarsvæðis Inúíta í Kanada.
Flugið hefst þann 26. júní í sumar og stendur yfir sumartíminn og út haustið, fram til 23. október. Til að byrja með er gert ráð fyrir einni ferð á viku, á miðvikudögum, og mun flugfélagið nota Dash 8-Q200 flugvélar sínar. Flugtíminn á milli á þeirri tegund er um tvær klukkustundir. Frá Iqaluit, áður Frobisher Bay. Myndin er frá árinu 2008.KMU Það var raunar á Vestnorden-ferðakaupstefnunni í Reykjavík síðastliðið haust sem ráðamenn Air Greenland kynntu fyrst þessi áform sín. Þar lýstu þeir bjartsýni um að flugið myndi standa undir sér þrátt að hafa neyðst til að gefast upp við fyrri tilraun á árunum 2012 til 2014. Félagið bauð þá einnig upp á flug á þessari leið yfir sumarmánuði. Þá reyndust farþegar einfaldlega of fáir. Áður hafði reglubundið flug milli þessara staða verið stundað um tuttugu ára skeið fram til ársins 2001. Flugfélag Íslands var fyrir sextán árum hvatt til þess að hefja flug milli Iqaluit og Nuuk í tengslum við áætlunarflug sitt til Grænlands. Þetta kom fram í viðtali fréttamanns Stöðvar 2 við ræðismann Danmerkur í Nunavut árið 2008 sem sjá má hér: Flugið núna er afrakstur samstarfssamnings sem Grænland og Nunavut gerðu árið 2022 um að styrkja samstarf á milli íbúa svæðanna á sviði menningar, mennta, sjávarútvegs og grænnar orku. Forystumenn Air Greenland vonast jafnframt til að flugleiðin muni greiða leið að auknum samskiptum á sviði viðskipta, stjórnmála og menningarmála, að því er Sermitsiaq greindi frá. Frá flugvellinum í Iqaluit. Þangað er áætlunarflug á þotum frá Montreal og Ottawa.KMU Iqaluit, sem áður hét Frobisher Bay, er fjölmennasti bær Nunavut með um 7.500 íbúa. Flugvöllurinn þar er helsti tengivöllur til byggða Inúíta í norðurhéruðum Kanada, með áætlunarflug til fimmtán bæja og borga, þar á meðal til Montreal og Ottawa, höfuðborgar Kanada. Samstarfssamningur Air Greenland við kanadíska flugfélagið Canadian North auðveldar jafnframt Grænlendingum að nýta Iqaluit sem millilendingarstað í flugi frá Nuuk til helstu borga Kanada. Flugbrautin í Iqaluit er 2.600 metra löng. Airbus-flugvélaframleiðandinn hefur nýtt hana til flugprófana í frosthörkum fyrir nýjar tegundir, þar á meðal fyrir Airbus A380 og A350 og síðast fyrir hina nýju A321-XLR.
Grænland Kanada Fréttir af flugi Norðurslóðir Samgöngur Icelandair Tengdar fréttir Nýja Airbus A321-þotan flugprófuð í fimbulkulda Hin nýja langdræga Airbus A321XLR-þota gengst um þessar mundir undir viðamiklar flugprófanir og var hún á dögunum reynd í fimbulkulda. Prófanirnar fóru fram á Iqaluit-flugvellinum við Frobisher-flóa í Norður-Kanada þar sem Airbus segir að frostið hafi farið niður í allt að -40 gráður. 20. apríl 2023 09:29 Grænlendingar fagna nýrri Airbus-breiðþotu Grænlendingar fögnuðu í fyrradag komu nýrrar breiðþotu Air Greenland. Þotan tekur yfir þrjúhundruð farþega í sæti og er dýrasti farkostur sem þessi næsta nágrannaþjóð Íslendinga hefur eignast. 9. desember 2022 22:50 Stækkun Nuuk-flugvallar styrkir tengslin við Ísland Borgarstjórinn í Nuuk sér fram á að fyrirhuguð stækkun flugvallarins þar muni styrkja böndin við Íslendinga enn frekar og efla um leið ferðaþjónustu á Grænlandi. 16. febrúar 2017 20:30 Mest lesið „Það er kennitöluflakk í skilgreiningu sinni“ Viðskipti innlent ORA svarar fyrir fiskbúðinginn: „Stundum þarf bara pung í að gera breytingar“ Neytendur Einn stofnenda Play og Leifur í framkvæmdastjórn Icelandair Viðskipti innlent „Hef engar upplýsingar um að eitthvað óeðlilegt hafi átt sér stað“ Viðskipti innlent Einar rýfur þögnina: Vísar kenningum um fléttu á bug Viðskipti innlent Sahara og Olís tilnefnd til tvennra alþjóðlegra verðlauna Viðskipti innlent KLAK health býður sprotafyrirtæki í heilsutækni velkomin Samstarf 208 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Samkaup eignast 38 prósenta hlut í Kjötkompaní Viðskipti innlent Kaupfélagið á bak við risaviðskipti í Iceland Seafood Viðskipti innlent Fleiri fréttir Rúmlega þriðjungs samdráttur í olíuvinnslu í Rússlandi Burger King opnar fyrsta staðinn á Grænlandi Eigandinn hættir sem forstjóri Trump setur tolla á lyf, vörubíla og húsgögn Murdoch-feðgar verði meðal kaupenda TikTok Ben kveður Jerry Nálgast samkomulag um TikTok Breytingar hjá Microsoft koma fyrirtækinu hjá sektum Ellison klórar í hælana á Musk Danski lyfjarisinn að baki Ozempic segir upp þúsundum manna Útvaldi sonurinn tryggir sér stjórn Murdoch-veldisins Vilja að Musk fái allt að 122 billjónir á næsta áratug Vara við „Lafufu“ Framkvæmdastjóri Nestlé látinn fara í kjölfar ástarsambands Sjá meira
Nýja Airbus A321-þotan flugprófuð í fimbulkulda Hin nýja langdræga Airbus A321XLR-þota gengst um þessar mundir undir viðamiklar flugprófanir og var hún á dögunum reynd í fimbulkulda. Prófanirnar fóru fram á Iqaluit-flugvellinum við Frobisher-flóa í Norður-Kanada þar sem Airbus segir að frostið hafi farið niður í allt að -40 gráður. 20. apríl 2023 09:29
Grænlendingar fagna nýrri Airbus-breiðþotu Grænlendingar fögnuðu í fyrradag komu nýrrar breiðþotu Air Greenland. Þotan tekur yfir þrjúhundruð farþega í sæti og er dýrasti farkostur sem þessi næsta nágrannaþjóð Íslendinga hefur eignast. 9. desember 2022 22:50
Stækkun Nuuk-flugvallar styrkir tengslin við Ísland Borgarstjórinn í Nuuk sér fram á að fyrirhuguð stækkun flugvallarins þar muni styrkja böndin við Íslendinga enn frekar og efla um leið ferðaþjónustu á Grænlandi. 16. febrúar 2017 20:30