Fótbolti

Elskar bjór og mætti alltaf með fimm auka­kíló

Sindri Sverrisson skrifar
Eden Hazard fékk kveðjuathöfn á landsleik Belga síðasta haust, eftir að hafa lagt skóna á hilluna.
Eden Hazard fékk kveðjuathöfn á landsleik Belga síðasta haust, eftir að hafa lagt skóna á hilluna. Getty/Joris Verwijst

Fyrrverandi knattspyrnustjarnan Eden Hazard viðurkennir að hafa ítrekað mætt of þungur og ekki í formi til æfinga hjá Real Madrid eftir sumarfrí.

Hazard segir eina ástæðuna hafa verið ást sína á bjór og hann hafi einfaldlega þurft að fórna svo miklu tíu mánuði ársins, að hann hafi viljað njóta þess til fulls að vera í sumarfríi með fjölskyldu sinni.

Hazard, sem kom til Real frá Chelsea fyrir 100 milljónir punda árið 2019, ræddi þessi mál í hlaðvarpsþætti John Obi Mikel, sem var samherji hans hjá Chelsea.

„Þetta var alveg satt,“ sagði Hazard um fréttirnar af því að hann mætti of þungur til æfinga á undirbúningstímabilin með Real.

„Á hverju sumri bætti ég á mig 4-5 kílóum því mér fannst maður fórna svo miklu í tíu mánuði ársins. Þá þarf maður að halda líkamanum í allra besta formi og fólk sparkar samt í þig, svo að fríið manns verður að vera frí,“ sagði Hazard.

„Ekki biðja mig um að gera neitt. Ég nýt þess að vera með fjölskyldunni, fara á ströndina, svo ekki láta mig þurfa að hlaupa þessar 3-4 vikur. Ég get sparkað í bolta með krökkunum á ströndinni, ekkert mál, en ekki biðja mig um að hlaupa,“ sagði Hazard.

„Ef þú skoðar ferilinn minn þá var maður alltaf meðvitaður um það fyrsta mánuð tímabilsins að þetta væri rétt að byrja, og svo frá september og október þá var ég á flugi, því ég þurfti tíma fyrir líkamann og hugann. Svo já, það er satt, ég kom úr fríinu með fimm kíló aukalega. Ég vissi það.

Ég elska allt við að vera með fjölskyldunni og vinum. Ef þú biður mig um að borða eitthvað þá borða ég það. Jafnvel þó að mig langi ekki í það þá borða ég það.

Sem Belgi þá elska ég bjór því landið mitt er með bestu bjóra í heimi. Ég er ekki að segja að ég drekki á hverjum degi, því þannig er það ekki, en það er gott að fá sér 1-2 eftir góðan leik,“ sagði Hazard.

Hazard, sem er 33 ára, tilkynnti í október á síðasta ári að hann hefði lagt skóna á hilluna, þremur mánuðum eftir að samningur hans við Real Madrid rann út. Hann lék aðeins 54 deildarleiki fyrir Real á fjórum árum, og skoraði fjögur mörk, eftir að hafa gert 85 mörk í 245 deildarleikjum fyrir Chelsea. Þá skoraði hann 33 mörk í 126 A-landsleikjum fyrir Belgíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×