Hvar hitti ég mögulegan framíðarmaka en ekki einhvern sem er aðeins leita sér að einnar nætur gaman? Tinder, Smitten, Facebook eða Instagram? Hvaða miðil er best að nota til að nálgast einhvern? Kynnast einhverjum?
Lífið á Vísi heyrði í nokkrum einhleypum um stefnumótamarkaðinn sem voru tilbúin að deila reynslu sinni undir nafnleynd.
Glimmerkjóll og gleði
„Instagram er gagnlegt til að finna vísbendingar um hagi fólks ef það er einhver sem mér líst vel á. Annars finnst mér mikilvægasti liðurinn í að finna ástina að vita nákvæmlega hvað það er sem maður fílar. Svo hjálpar að fara í glimmerkjól, hafa gaman og líða vel til að laða að sér réttu manneskjuna,“ segir kona á fertugsaldri í samtali við Vísi.

Tinder út Smitten inn?
„Ég upplifi að Tinder sé svolítið búið. Smitten er klárlega meira málið í dag. Samfélagsmiðlar eru líka alveg staður til að þreifa fyrir sér og mér finnst fólk mikið sýna áhuga þar. Reglulegt reaction á story og að „slidea í DM“ eru til dæmis leiðir sem eru mikið notaðar til að sýna áhuga,“ segir kona á fertugsaldri.
Þar á hún við að bregðast við færslum viðkomandi á miðlinum eða senda skilaboð.

Skvísur á klúbbum
„Það er mjög einfalt að finna skvísur á klúbbnum en þær eru ekki endilega að leita að því sama og maður sjálfur. Auto og Hax eru heitustu staðirnir til að pikka upp,“ segir karlmaður á þrítugsaldri.
Það eru nefnilega ekki allir að leita að því sama.

Beisik drykkur á djamminu
„Þetta er frekar beisik held ég. Maður nálgast þær á Tinder og djamminu. Ég býð dömu í drykk ef ég hitti hana í bænum og spyr hvort ég megi adda henni á Instagram,“ segir karlmaður á þrítugsaldri.

Slær ekki hendinni við formlegu boði á stefnumót
„Ég kann voðalega lítið á þennan stefnumótamarkað, ef það er hægt að kalla hann það hérna á Íslandi. Ég myndi aldrei senda neinum karlmanni að fyrra bragði en myndi ekki slá hendinni á móti einu góðu stefnumóti ef það færi fram í skilaboðum á Facebook,“ segir kona á fimmtugsaldri.

Verum óhræddir
„Tinder er off nema það sé fyrir skyndikynni. Ég myndi frekar kjósa að nota Smitten-appið eða Instagram og bjóða konu á stefnumót á þann veg. Mér finnst fólk almennt eiga að vera óhrætt að senda á einstaklinga sem þeim líst vel á og bjóða á stefnumót. Íslenskir karlmenn þurfa klárlega að bæta sig í þeim efnum,“ segir karlmaður á fertugsaldri.
