Búin að vinna 46 titla á ferlinum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. febrúar 2024 11:01 Kartrine Lunde hefur unnið allt og það mörgum sinnum. Hún er enn í fremstu röð orðin 43 ára gömul. Getty/Clicks Images Sigurganga norska markvarðarins Katrine Lunde hélt áfram um helgina þegar hún varð norskur bikarmeistari með Vipers frá Kristiansand.
Hin 43 ára gamla Lunde hefur þar með unnið 46 titla á ferli sínum og er sigursælasta handboltakona sögunnar. Hún er að spila lengur en þær flestar og er enn í hópi bestu markvarða heims enda enn lykilmaður í norska landsliðinu. Lunde er uppalin hjá Vipers en fór erlendis að spila árið 2004, þá 24 ára gömul. Hún sneri aftur árið 2017 og hefur spilað með Kristiansand síðan. Þetta er sjöundi norski bikarmeistaratitill hennar í röð og alls hefur hún unnið sextán titla með Vipers síðan hún kom aftur fyrir sjö árum. Hún hefur sex sinnum orðið norskur meistari en varð líka fjórum sinnum ungverskur meistari, þrisvar sinnum danskur meistari og einu sinni rússneskur meistari. Hún vann tvo bikarmeistaratitla í Danmörku og fimm bikarmeistaratitla í Ungverjalandi. Hún hefur unnið Meistaradeildina sjö sinnum og EHF-bikarinn einu sinni. Þá hefur hún unnið tíu gull með norska landsliðinu á stórmótum, tvö á Ólympíuleikum, tvö á heimsmeistaramótum og sex á Evrópumeistaramótum. Alls hefur Lunde unnið til átján verðlauna á stórmótum með norska landsliðinu. Titlarnir eru því samtals 46. Sextán með norska félaginu, ellefu með ungverska félaginu, sjö með danska félaginu, tvo með rússnesku félagi og tíu með norska landsliðinu. Ótrúleg sigurganga.
Norski handboltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Íslenski boltinn Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira
Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Íslenski boltinn
Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Íslenski boltinn