Í sameiginlegri færslu Laufeyjar og Elton John á Instagram er myndbrot úr þættinum þar sem þau tala um tónlistina og yfirstandandi tónleikaferðalag hennar.
„Sem tónlistarmaður veit ég hversu góður tónlistarmaður þú ert. Það er æðislegt að sjá hve góðum árangri þú hefur náð,“ segir Elton John í hljóðbrotinu og spyr hvað sé á dagskrá hjá henni.
„Ég held að nú sé runnið upp fyrsta stóra tónleikaárið mitt. Ég verð mikið á faraldsfæti og ferðast til næstum hverrar einustu heimsálfu,“ svarar Laufey.
John segir þá frábært að sjá hve mikið konur eru að blómstra í tónlistariðnaðinum og nefnir þar Laufey, Lana Del Rey og Billie Eilish.
„Það er alveg dásamlegt sjá hið kvenlega taka yfir hið karlmannlega í tónsmíðum. Þú ert svo sannarlega ein þeirra sem ryðja þá braut,“ segir John.
„Mér finnst einmitt að þegar ég sem tónlist sem gerir mig að mér, sem sagt tónlist sem mér finnst sérstaklega góð, þá gengur mér best. Það er svo sannarlega góður tími fyrir konur í tónlist núna,“ svarar Laufey.
John hefur haldið úti hlaðvarpinu frá árinu 2015 og hefur fengið til sín gesti á borð við Lizzo, Billie Eilish, Tame Impala og Tom Odell. Áskrifendur Apple Music geta hlustað á þáttinn í heild sinni þar.
Brot úr þættinum má sjá hér að neðan.