Innlent

Sig­ríður stefnir á ráðu­neytis­stjórann

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Sigríður Á. Andersen stefnir á að verða ráðuneytisstjóri í ráðuneyti Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur. Þær voru um tíma saman þingmenn Sjálfstæðisflokksins.
Sigríður Á. Andersen stefnir á að verða ráðuneytisstjóri í ráðuneyti Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur. Þær voru um tíma saman þingmenn Sjálfstæðisflokksins. Vísir/Arnar

Sigríður Á. Andersson fyrrverandi dómsmálaráðherra er meðal átta sem sækja um embætti ráðuneytisstjóra fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Guðmundur Árnason, fráfarandi ráðuneytisstjóri, tekur senn við sendiherrastöðu í utanríkisþjónustunni.

Alls bárust átta umsóknir um embættið sem auglýst var í febrúar. Umsóknarfrestur rann út 7. mars. Auk Sigríðar eru meðal umsækjenda Guðrún Ögmundsdóttir skrifstofustjóri, Sigurður H. Helgason forstjóri Sjúkratrygginga og Tómas Brynjólfsson settur ráðuneytisstjóri.

Umsækjendur um embættið eru:

  • Esther Finnbogadóttir, leiðandi sérfræðingur
  • Guðrún Ögmundsdóttir, skrifstofustjóri
  • Jóhann Ágústsson, viðskiptafræðingur/ráðgjafi
  • Matthías G. Pálsson, fastafulltrúi Íslands hjá FAO, WFP og IFAD í Róm
  • Sigríður Á. Andersen, lögmaður
  • Sigríður Kristbjörnsdóttir, löggiltur endurskoðandi, fjármála- og verkefnastjóri
  • Sigurður H. Helgason, forstjóri
  • Tómas Brynjólfsson, settur ráðuneytisstjóri

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir færði sig úr utanríkisráðuneytinu í fjármála- og efnahagsráðuneytið í fyrra þegar Bjarni Benediktsson sagði af sér embætti vegna sölunnar á hlut ríkisins í Íslandsbanka. 

Sigríður Á. Andersen sagði af sér embætti í mars 2019 vegna Landsréttarmálsins svonefnda. Þórdís Kolbrún tók við af Sigríði sem ráðherra en hún var þá iðnaðar-, ferðamála og nýsköpunarráðherra. Síðan þá hefur Þórdís Kolbrún fært sig í utanríkisráðuneytið og loks fjármála- og efnahagsráðuneytisins.

Tilkynning á vef ráðuneytisins.


Tengdar fréttir

Þór­dís leitar að arf­taka Rómarfarans Guð­mundar

Fjármála- og efnahagsráðuneytisins hefur nú auglýst til umsóknar embætti ráðuneytisstjóra. Gert er ráð fyrir að skipað verði í embættið þann 1. apríl til fimm ára. Umsóknarfrestur rennur út þann 7. mars.

Tómas settur ráðu­neytis­stjóri

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur sett Tómas Brynjólfsson, skrifstofustjóra skrifstofu efnahagsmála, í embætti ráðuneytisstjóra fjármála- og efnahagsráðuneytisins til 31. mars næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×