Kristian Nökkvi með fyrsta markið sitt síðan í janúar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. mars 2024 12:12 Kristian Nökkvi Hlynsson fagnar marki sínu fyrir Ajax í dag en hann hafði ekki skorað í tvö mánuði. Getty/ANP OLAF KRAAK Kristian Nökkvi Hlynsson skoraði langþráð mark í dag þegar Ajax vann 3-1 útisigur á PEC Zwolle í hollensku deildinni.
Þetta var sjöunda deildarmark Kristians á leiktíðinni en það fyrsta síðan hann skoraði í sigri á Heracles Almelo í janúar. Kristian var búinn að spila sjö deildarleiki í röð með Ajax án þess að skora. Kristian kom Ajax í 1-0 strax á tólftu mínútu leiksins eftir að hafa fengið stoðsendingu frá Benjamin Tahirovic. Ajax bætti síðan við öðru marki tólf mínútum síðar þegar Chuba Akpom skoraði. Zwolle minnkaði muninn á 72. mínútu með marki frá Filip Krastev og skoraði síðan aftur sjö mínútum síðar en Varsjáin dæmdi markið af vegna rangstöðu. Chuba Akpom skoraði síðan sitt annað mark í leiknum á 84. mínútu og innsiglaði sigur Ajax liðsins. Annað mark var síðan dæmt af Zwolle mönnum á lokamínútum vegna rangstöðu. Zwolle skoraði því jafnmörg mörk og Ajax en aðeins eitt þeirra fékk að standa. Kristian er nú kominn með sjö mörk og eina stoðsendingu í 23 deildarleikjum Ajax á leiktíðinni. Hann skoraði einnig þrjú mörk með unglingaliðinu í B-deildinni og er þvi með tíu deildarmörk á leiktíðinni.
Hollenski boltinn Mest lesið Varð að þegja yfir samningnum við Barcelona í margar vikur Handbolti Félagið neitar að borga svo Amorim opnar veskið Enski boltinn Uppgjörið: Haukar - Njarðvík 92-91 | Haukar Íslandsmeistarar 2025 Körfubolti Myndaveisla: Haukar Íslandsmeistarar eftir ótrúlegan oddaleik Körfubolti „Við ætluðum ekki að tapa þremur leikjum í röð“ Körfubolti Kvennalið Everton mun spila á Goodison sem verður ekki rifinn Enski boltinn Dagskráin í dag: Úrslitaeinvígið og Benóný Breki Sport „Að lokum var það betra liðið sem vann“ Körfubolti Tatum með slitna hásin Körfubolti Stendur ekki steinn yfir steini hjá Orra-lausu Sociedad Fótbolti Fleiri fréttir Félagið neitar að borga svo Amorim opnar veskið Kvennalið Everton mun spila á Goodison sem verður ekki rifinn Stendur ekki steinn yfir steini hjá Orra-lausu Sociedad Þór komið áfram eftir öruggan sigur á Suðurlandi Man City sagt hafa lagt fram „mega“ tilboð í Wirtz Einn besti leikmaður KR frá næsta mánuðinn hið minnsta Víðir og Reynir ekki í eina sæng Logi á leið í burtu en ekki til Freys Markverði Víðis boðið til Real Madrid „Agndofa við að sjá þetta allt“ Sonur Ancelottis orðaður við Rangers Þeir bestu (50.-41. sæti): Skagamiðverðir, markahrókar úr Eyjum og Laugardalnum og öldungurinn aftast Uppbótartíminn: „Ég hef miklar áhyggjur af þeim“ Dæmir úrslitaleik Evrópudeildar þrátt fyrir umdeilda fortíð Amorim gefur í skyn að hann fari frá Man Utd breytist kúltúrinn ekki Alonso tekur við Real fyrir HM félagsliða Þróttur skoraði sex og flaug áfram Valur marði Fram í framlengingu Íslendingaliðið sló óvænt stórlið Bodø/Glimt úr bikarnum Tindastóll, FH og HK áfram í bikarnum Leiður að heyra púað á vin sinn: „Getur ekki sagt fólki hvernig því á að líða“ Mikael Egill spilaði allan leikinn þegar Venezia komst upp úr fallsæti Hafa notað sama byrjunarliðið í öllum leikjunum Ancelotti tekur við Brasilíu Fjölskylda Glódísar sá hana taka við meistaraskildinum Neyddust til þess að sofa á æfingasvæðinu Áttar sig ekki á Stjörnunni: „Bíð bara eftir því að Garpur poppi þarna upp“ Hafa unnið FH tólf sinnum í röð Beckham reiður: Sýnið smá virðingu Hrósuðu Alexander: „Varð ekkert var við það að þarna væri fimmtán ára strákur inni á vellinum“ Þeir bestu (60.-51. sæti): Himnasending frá Skotlandi, Sölvi Helgason íslenska boltans og tíur af guðs náð Sjá meira
Þeir bestu (50.-41. sæti): Skagamiðverðir, markahrókar úr Eyjum og Laugardalnum og öldungurinn aftast
Þeir bestu (60.-51. sæti): Himnasending frá Skotlandi, Sölvi Helgason íslenska boltans og tíur af guðs náð