Óeirðir brutust út eftir 3-2 sigur Fenerbahce þegar stuðningsmenn Trabzonspor ruddust inn á völlinn og réðust á öryggisverði og leikmenn Fenerbahce. Í kjölfarið var tekin ákvörðun innan Fenerbahce um að félagið myndi ákveða með atkvæðagreiðslu hvort liðið yrði dregið úr deildarkeppninni í Tyrklandi.
Sú tillaga var hins vegar felld og munu nítjánfaldir meistarar Fenerbache því halda keppni áfram í tyrknesku deildinni.
„Á öllum okkar fundum var það að draga liðið úr keppni sá möguleiki sem okkur leist verst á,“ sagði Ali Koc, stjórnarformaður Fenerbahce.
Leika fyrir luktum dyrum
Trabzonspor hefur hins vegar fengið refsingu fyrir óeirðir sinna stuðningsmanna þetta kvöld og mun liðið þurfa að leika sex leiki fyrir luktum dyrum. Þá hefur félaginu einnig verið gert að greiða sekt upp á þrjár milljónir líra, sem samsvarar um rúmlega þrettán milljónum króna.
Eins og áður segir brutust óeirðirnar út að leik loknum eftir 3-2 sigur Fenerbahce. Mikill hiti var í fólki og hófust lætin í raun á 87. mínútu leiksins þegar Michy Batshuayi skoraði sigurmark gestanna og áhorfendur grýttu hlutum í átt að honum er hann fagnaði markinu.
Að leik loknum nýttu leikmenn Fenerbahce svo tækifærið til að strá salti í sár stuðningsmanna Trabzonspor með því að fagna vel og lengi inni á miðjum vellinum.