AFC Bournemouth og Manchester United gerðu 2-2 jafntefli í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu. Gestirnir frá Manchester lentu tvívegis undir en komu til baka í bæði skiptin. Það má þó með sanni segja að þeir hafi stolið stiginu í dag.
Heimamenn byrjuðu frábærlega og Dominic Solanke kom þeim yfir með hnitmiðuðu skoti eftir rúman stundarfjórðung. Marcos Senesi vann boltann þá af landa sínum Alejandro Garnacho, boltinn barst á Solanke sem fór svo illa með hinn unga Willy Kambwala að miðvörðurinn steinlá.
Solanke lét svo vaða rétt fyrir utan vítateig og söng boltinn í netinu án þess að André Onana kæmi neinum vörnum við í marki Man United.
Gestirnir jöfnuðu metin eftir hálftímaleik. Góð pressa gestanna skilaði sér þá með því að boltinn hrökk fyrir fætur Bruno Fernandes inn á markteig og Portúgalinn þrumaði boltanum með vinstri fæti sínum upp í þaknetið.
Man United er hins vegar ófært um að halda einbeitingu eftir að liðið skorar og komst Bournemouth yfir á nýjan leik þegar 36 mínútur voru komnar á klukkuna. Nú gaf Senesi á Justin Kluivert sem þrumaði boltanum nánast í gegnum tvo varnarmenn gestanna og í netið. Staðan 2-1 í hálfleik.
Aðeins eitt mark var skorað í síðari hálfleik og það gerðu gestirnir. Fernandes jafnaði þá metin með marki úr vítaspyrnu þegar 65 mínútur voru liðnar.
Í uppbótartíma fengu heimamenn vítaspyrnu en eftir að atvikið var skoðað nánar af myndbandsdómara leiksins þá sást að brotið var fyrir utan teig og aukaspyrna niðurstaðan. Hún endaði ekki í netinu og lokatölur á Vitality-vellinum 2-2 að þessu sinni.
Despite going behind twice, @ManUtd claim a point against @afcbournemouth on the south coast #BOUMUN pic.twitter.com/faJAIVgcl1
— Premier League (@premierleague) April 13, 2024
Stigið gerir lítið fyrir bæði lið en veik von Man United um að enda í Meistaradeildarsæti er orðin enn veikari. Rauðu djöflarnir sitja í 7. sæti með 50 stig að loknum 32 leikjum, tíu stigum á eftir Aston Villa og Tottenham Hotspur. Á sama tíma er Bournemouth með 42 stig í 12. sæti.