Reyndi að drepa mann eftir að upp úr sauð á gamlárskvöld Árni Sæberg skrifar 10. maí 2024 16:51 Landsréttur kvað upp dóm í málinu í dag. Vísir/Vilhelm Skúli Helgason, karlmaður á fertugsaldri, hefur verið dæmdur til fimm ára fangelsisvistar fyrir tilraun til manndráps, með því að stinga mann ítrekað. Í héraði hlaut hann aðeins þriggja og hálfs árs refsingu.
Þetta var niðurstaða Landsréttar, sem kvað upp dóm sinn yfir Skúla í dag. Í dóminum segir að Skúli hafi verið ákærður fyrir að leggja ítrekað til manns með vasahnífi með þeim afleiðingum að hann samtals fimm stunguáverka, þar af einn sem náði inn í kviðarhol og í gegnum milta svo fjarlægja þurfti miltað, og annan sem olli loftbrjósti. Partí fóru úr böndunum Í dómi Héraðsdóms Reykjaness segir að Skúli hafi greint frá því hjá lögreglu að samkvæmi hefði verið heima hjá honum á gamlárskvöld og einnig hjá nágranna hans. Fólk hafi farið á milli samkvæmanna. Hann hafi neytt áfengis og verið undir töluverðum áhrifum en þó munað eftir rifrildi milli tveggja, sem einnig voru ákærðir í héraði. Hann hafi verið sleginn í gólfið í partíi nágranna hans. Seinna hafi einn meðákærði og drengur sem hann þekkti ekki ruðst inn til hans með flöskur í hönd. Drengurinn hafi brotið flösku á andlitinu á honum og látið höggin dynja á honum. Hann hafi talið sig hafa dottið út í skamma stund og mundi ekki vel eftir kvöldinu. „Hann mundi þó að hafa verið með lítinn vasahníf í buxnavasanum og hann hafi stungið drenginn, sem hann þekkti ekki, einu sinni.“ Bar fyrir sig neyðarvörn Í dómi Landsréttar segir að Skúli hafi gefið viðbótarskýrslu fyrir Landsrétti, þar sem hann hafi sagst muna takmarkað eftir atvikum kvöldsins, enda hafi hann fengið höfuðhögg. Hann ræki þó minni til þess að hafa stungið brotaþola einu sinni en hann hefði þó ekki haft ásetning til að bana honum „Ákærði kvaðst fyrst og fremst hafa ætlað að vernda sig og fjölskyldu sína en brotaþoli hefði ruðst inn til hans við annan mann og ákærði teldi sig hafa brugðist við í nauðvörn þar sem hann hefði verið hræddur og óttast um líf sitt. Kvaðst ákærði enn fremur muna með vissu að brotaþoli og annar maður hafi veitt honum og vitninu X áverka með flöskum. Aðspurður fyrir dómi um hvort hann hefði ekki getað læst dyrum að heimili sínu og hringt á lögreglu hafi hann kveðið það eflaust geta verið en að í ofsahræðslu tækju menn ekki yfirvegaðar ákvarðanir. Hefði mátt vera ljóst að líklegast væri að maðurinn myndi deyja Í dómi Landsréttar segir að með vísan atvika málsin og forsendna hins áfrýjaða dóms yrði Skúli sakfelldur fyrir að hafa ráðist á manninn með þeim hætti sem lýst er í ákæru. Honum hefði átt að vera ljóst á verknaðarstundu að langlíklegast væri að bani hlytist af atlögunni. Með vísan til forsendna héraðsdóms væri einnig staðfest sú niðurstaða dómsins að verknaður Skúla gæti ekki helgast af neyðarvörn. Ekki fallist á að fara niður fyrir lágmarksrefsingu Refsing fyrir það brot sem Skúli var sakfelldur fyrir skuli að lágmarki nema fimm ára fangelsi. Í hinum áfrýjaða dómi hafi sakfelling fyrir tilraun til manndráps verið byggð á því að með því að veita brotaþola þá stunguáverka með hnífi sem lýst sé í ákæru hafi Skúli framið lífshættulegan verknað og ljóst sé að hending ein hafi ráðið því að ekki hlaust bani af. Með dómi héraðsdóms var Skúli aðeins dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi með vísan til ákvæðis hegningarlaga um að heimilt sé að lækka refsingu fyrir líkamsárás ef hún er unnin í áflogum eða átökum milli þess, sem henni veldur, og þess, sem misgert er við. Í dómi Landsréttar segir hins vegar að þótt Skúli hafi framið verknaðinn í tengslum við átök við aðra verði ekki talið að efni sé til að beita ákvæðinu til refsilækkunar í málinu. „Er þá horft til þess að ákærði beitti hníf við verknaðinn sem hann stakk brotaþola ítrekað með.“ Refsing hans væri því hæfilega metin fimm ára fangelsisvist, að teknu tilliti til mikils dráttar á rannsókn málsins. Þá var hann dæmdur til að greiða brotaþola 2,1 milljón króna með vöxtum og allan áfrýjunarkostnað málsins, 1,9 milljónir króna. Í héraði var Skúli dæmdur til að greiða sakarkostnað upp á um 4,1 milljón króna.
Dómsmál Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Erlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Innlent Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Erlent Fleiri fréttir Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Sjá meira