Merkum áfanga fagnað í verslun BYKO á Selfossi BYKO 24. maí 2024 08:31 Sigurður B. Pálsson, forstjóri BYKO, ávarpaði gesti þegar fyrirtækið fagnaði nýlega þeim áfanga að framkvæmdum lauk vegna breytinga á uppsetningu verslunar fyrirtækisins á Selfossi. BYKO fagnaði nýverið þeim áfanga að framkvæmdum lauk vegna breytinga á uppsetningu verslunar fyrirtækisins á Selfossi. Við þetta tækifæri ávarpaði Sigurður B. Pálsson forstjóri BYKO gesti og fór yfir tilganginn með þessum breytingum.
Sigurður sagði þetta vera fyrsta áfanga af mörgum í fimm ára vegferð sem fyrirtækið hefur nú lagt upp í til að breyta ásýnd og uppsetningu verslana sinna og tala þannig beint inn í loforð BYKO um einfaldleika og hraða. Með þessum breytingum sé jafnframt verið að ná fram aðgreiningu milli ólíkra hópa viðskiptavina en Sigurður segir það hafa komið skýrt fram í samtölum við fagaðila að hraði, einfaldleiki og það að varan sé alltaf til séu ráðandi þættir í heildarupplifun þess hóps. „Þessi vegferð okkar byggir á vel ígrundaðri stefnumótunarvinnu sem var unnin á árunum 2021 og 2022, þar sem allt starfsfólk kom að borðinu ásamt fjölda af okkar viðskiptavinum. Okkar framtíðarsýn snýr að því að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavina, hvort sem um er að ræða fagaðila í framkvæmdum eða einstaklinga og fjölskyldur í framkvæmdum og fegrun heimilisins. Markmið BYKO er að mæta viðskiptavininum þar sem hann er, sem þýðir að metnaður okkar liggur í því að viðskiptavinir okkar eiga ekki að hafa neina ástæðu til að leita annað. Okkar loforð er: það er einfaldast að versla í BYKO og hlutverk okkar er að sjá til þess að viðskiptavinum gangi vel í þeim verkefnum sem þau eru að fást við,“ segir Sigurður. Í næsta mánuði fagnar BYKO á Selfossi 20 ára farsælli rekstrarsögu en verslunin opnaði þann 26. júní 2004. Í ávarpi sínu þakkaði forstjórinn viðskiptavinum verslunarinnar sérstaklega fyrir þá tryggð sem þeir hafa sýnt BYKO í þessa tvo áratugi og hvatti þá til áframhaldandi samtals og ábendinga til starfsfólk svo að sem best megi uppfylla þeirra þarfir og væntingar. Enn fremur þakkaði Sigurður samstarfsfólki og verktökum fyrir þeirra framlag við þessar breytingar sem voru mikil áskorun ofan í opnunartíma og daglegan rekstur verslunarinnar.
Byggingariðnaður Verslun Mest lesið Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Viðskipti innlent Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar Viðskipti innlent 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Viðskipti innlent Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Viðskipti innlent Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Viðskipti erlent Atli Þór til Almannaróms Viðskipti innlent Greiða 4,3 milljarða vegna sölu persónuupplýsinga Viðskipti erlent Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Viðskipti innlent Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Viðskipti innlent Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Viðskipti innlent Fleiri fréttir Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Gluggi er ekki bara gluggi Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Nýr og ódýrari valkostur fyrir fyrirtæki sem þurfa að losa úrgang JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Tryggðu þér betri sýnileika í gervigreindarleit og hefðbundinni leit Sex lausnir sem geta lokað stærstu öryggisgötum fyrirtækisins Sjá meira