Rætt var við veðurfræðinginn Sigurð Þ. Ragnarson, betur þekktan sem Sigga storm, í Reykjavík síðdegis í gær. Þar var hann ynntur eftir viðbrögðum við ummælum sínum frá því í apríl þar sem hann sagði einstaka veðurblíðu framundan og lofaði sólríku, hlýju og þurru sumri.
Eins og allir hafa orðið varir við hefur sú spá ekki staðist heldur hefur mjög óvenjuleg kuldatíð herjað á landann síðustu daga, ekki síst fyrir norðan.
„Ég stend við spána per se,“ segir Siggi og bendir á að forsendur hafi breyst.
Við vissum ekki að við værum að fá yfir okkur norður heimskautsloft hér í júníbyrjun með þeim ósköpum sem hafa dunið yfir.
„Það er nú bara einusinni þannig í veðurfræðinni að spár geta klikkað þó í nærtíma væri en heilt sumar.“
Lægðin á leið til Noregs
Siggi segir að fyrir viku hafi honum brugðið yfir því hvernig spárnar litu út.
„Þetta hret sem er búið að vera í gangi núna, við megum ekki gleyma því að þetta er ekkert annað en heimskautavetur sem lægðin náði í.“
Hins vegar sé það svo að um miðja vikuna fari þessi lægð loks yfir til Noregs og sjái um að kæla Norðmenn niður.
„En við fáum aftur á móti hæðarsvæði sem gerir það að verkum að við fáum suðrænt loft og mun hlýrra veður. Það gæti farið í 18, 19 stig fyrir norðan. En það er ekki fyrr en á miðvikudag, fimmtudag. Syðra verður líka miklu hlýrra, 10-15 stig og ágætis veður. Vindur hægur, verður orðið vindlaust meira og minna í næstu viku þó það lægi strax á morgun.“
Júní sé því miður ekki mjög hagstæður veðurlega séð og alvöru hlýindi láti bíða eftir sér. Hann bindur þó miklar vonir við að júlí og ágúst verði sólríkir og að landsmenn geti tekið gleði sína á ný. Besta veðrið um helgina verði á sunnanverðu landinu.
Hér er hægt að hlusta á viðtalið í heild.