„Ég hef engan áhuga á því að vera á bekknum“ Stefán Árni Pálsson skrifar 11. júlí 2024 08:01 Frederick Schram verður mögulega með Val út tímabilið. vísir/bjarni Margt bendir til þess að Valsmenn verði með tvo frábæra markverði í sínum herbúðum næstu mánuði. En aðeins einn þeirra getur verið inn á vellinum í einu.
Eins og fram kom á dögunum er markvörðurinn Ögmundur Kristinsson á leiðinni í Val. Frederik Schram er nú þegar markvörður liðsins en aftur á móti er hann á útleið frá félaginu. Nú er spurning hvað verður um Frederik Schram, hvort hann sé að yfirgefa félagið nú strax í júlí þegar að félagaskiptaglugginn opnar eða klárar hann tímabilið með Val. Rætt var við markvörðinn í Sportpakkanum á Stöð 2 í gærkvöldi. „Eins og staðan var núna var ég ekki með þá tilfinningu að vilja vera áfram hjá félaginu og mér fannst í raun og veru mikilvægast að fylgja hjartanu,“ segir Frederick og heldur áfram. Einbeitir sér að Valsmönnum í bili „Eins og staðan er núna er ég bara leikmaður Vals og heldur áfram að einbeita mér hundrað prósent að því. En ég veit svo sem ekkert alveg hvað gerist. Ef það kemur upp lið sem vill fá mig núna þá er þetta ekkert endilega bara spurning hvað ég vill gera, heldur einnig hvað vill Valur gera. Svo það er erfitt að segja núna en ég er búinn að lofa Adda [Arnari Grétarssyni, þjálfara liðsins] og stjórn Vals að eins lengi og ég er hér er ég með hundrað prósent fókus.“ Frederik hefur varið mark Vals frá því í júní 2022 og verið einn fremsti markvörður deildarinnar undanfarin tvö ár. Valsmenn vildu hafa hann lengur í sínum herbúðum en eftir samtöl við Frederik var ljóst að það myndi ekki ganga. En veit Frederick hvort hann sé að fara núna á bekkinn hjá Val þegar Ögmundur kemur til liðsins? „Arnar stjórnar því bara. En eins og staðan er núna er ég fyrsti markvörður en fótboltinn breytist fljótt. En ég hef engan áhuga á því að vera á bekknum hjá Val en þjálfarinn ræður þessu bara.“ Í spilaranum hér að ofan má sjá viðtalið við markvörðinn úr Sportpakka gærkvöldsins.
Besta deild karla Valur Mest lesið Féll úr skíðalyftu og lést Fótbolti Goðsögn fallin frá Enski boltinn Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Íslenski boltinn Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Fótbolti Var frústreraður vegna landsliðsins Fótbolti Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Íslenski boltinn Síðasti dansinn hjá Kelce? Sport Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Fótbolti Dreymir enn um Evrópu: „Ekki tilbúin að borga það sama“ Sport Kærður af knattspyrnusambandinu Enski boltinn Fleiri fréttir Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Meira en 37 stöðugildi hjá Knattspyrnusambandi Íslands Óskar Hrafn um komu Arnórs Ingva: „Gífurlega dýrmætt fyrir KR“ Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Breiðablik kaupir Jónatan frá Norrköping Elías mættur til meistaranna KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Hilmar Árni til starfa hjá KR Segir fjórðung í bók Óla ósannan Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Sjá meira