Logi áfram á skotskónum en Patrik hélt hreinu og lagði líka upp mark Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. júlí 2024 17:00 Patrik Gunnarsson lét til sína taka á báðum endum vallarins í dag. Getty/ Jonathan Moscrop Logi Tómasson skoraði fyrir Strömsgodset í norsku úrvalsdeildinni í dag og Patrik Gunnarsson átti flottan leik í marki Víking.
Patrik Gunnarsson og félagar í Viking unnu 2-0 sigur á Kristiansund í Íslendingaslag. Víking hefur verið á miklu skriði en þetta var fimmti sigurinn í síðustu sex leikjum en liðið hefur leikið alla þessa sex leiki án þess að tapa. Patrik hélt ekki aðeins marki sínu hreinu heldur átti hann einnig stoðsendinguna í fyrra marki Víking á upphafsmínútu seinni hálfleiks. Markið skoraði framherjinn Sander Svendsen sem var einnig með seinna markið. Patrik hefur haldið marki sínu hreinu í alls fimm leikjum á leiktíðinni þar af fjórum sinnum í síðustu átta deildarleikjum. Hilmir Rafn Mikaelsson var í byrjunarliði Kristiansund en tekinn af velli á 63. mínútu. Logi skoraði í öðrum leiknum í röð en því miður dugði það skammt. Strömsgodset tapaði 3-1 á útivelli á móti Lilleström. Logi minnkaði muninn í 2-1 á 32. mínútu eftir að Lilleström komst í 2-0 á fyrstu sautján mínútum leiksins. Þetta var þriðja mark Loga á leiktíðinni en hann er einnig með þrjár stoðsendingar. Logi spilaði fyrstu 73 mínúturnar í dag. Brynjar Ingi Bjarnason og Viðar Ari Jónsson voru í byrjunarliði HamKam sem vann 2-1 útisigur á Odd. Viðar var tekinn af velli í hálfleik í stöðunni 1-1. Júlíus Magnússon lék allan leikinn á miðju Fredrikstad sem gerði markalaust jafntefli á heimavelli við Molde. Fredrikstad hefur ekki fagnað sigri í fimm síðustu leikjum en er samt í fimmta sæti deildarinnar.
Norski boltinn Mest lesið Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Willum vill fara norsku leiðina Sport Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti Sakar lækni landsliðsins um loddaraskap Fótbolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn Bróðir Yamals slær í gegn á HM Fótbolti Aukinn viðbúnaður vegna sögu Englands og Argentínu Fótbolti „Þetta er svo hörmulegur dómur, án gríns“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Fólk meiðist og aðrir þurfa að taka við“ Virkar eins og forfallakennari Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann Sakar lækni landsliðsins um loddaraskap Mbappé klár í slaginn en Spánverjar líklegri til sigurs Bróðir Yamals slær í gegn á HM Sjáðu dramatíkina í endurkomusigri Blika Aukinn viðbúnaður vegna sögu Englands og Argentínu „Þetta er svo hörmulegur dómur, án gríns“ Rice búinn að hrista af sér magakveisuna og getur byrjað gegn Argentínu „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Spila að eigin ósk í sömu litum og í leiknum fræga með „hendi guðs“ „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Fylkismenn keyrðu yfir Vestra í upphafi leiks Frábært að koma úr meiðslum og skora sitt fyrsta mark Valur bætir við sig fyrrum markadrottningu úr Lengjudeildinni Uppgjörið: Breiðablik-Keflavík 2-1 | Kristinn tryggði Blikum sigurinn Lögreglan hefur hafið rannsókn á andláti HM-leikmannsins Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Tekinn við króatíska landsliðinu á ný Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Hilmir fljótur að finna skotskóna í Tékklandi Häcken selur Fanneyju Ingu til Vålerenga Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Lést aðeins nokkrum vikum eftir að hann var rekinn úr hópi HM-dómara Breyttu nafninu á flugvél norska liðsins í „Ro Ro Ro Ro Airlines“ United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Þórdís fer frá Þrótti til Breiðabliks Myndavélin hreyfðist ekki og því engin snerting Sjá meira