Milt veður fram að og um helgi en svo tekur djúp lægð við Lovísa Arnardóttir skrifar 8. ágúst 2024 09:55 Það var hægt að njóta blíðunnar í gær og verður líklega hægt næstu daga. Í næstu viku verður ekki sama blíða. Vísir/Vilhelm Það verður hæg norðlæg eða breytileg átt í dag og á morgun. Það verður fremur þungbúið norðan- og austanlands og svalt, en bjartara sunnan heiða og mildara. Hiti er á bilinu 7 til 17 stig. Þetta kemur frami hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar.
Þar segir einnig að það verði dálítil væta af og til í flestum landshlutum og sums staðar þokuloft við norður- og austurströndina. Um helgina verður hægviðri, skýjað með köflum og stöku skúrir, einkum síðdegis. Milt veður og fínasta útivistarveður að sögn veðurfræðings. Eftir helgi gæti hins vegar veður versnað þar sem líkur eru á að djúp lægð komi til landsins. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Norðvestlæg eða breytileg átt 3-8 m/s. Lítilsháttar rigning um landið norðanvert, síðdegisskúrir suðaustanlands, en skýjað með köflum og þurrt suðvestantil. Hiti 7 til 15 stig, svalast fyrir norðan. Á laugardag: Suðvestlæg eða breytileg átt 3-8 og léttir til fyrir norðan. Dálítil væta norðvestatil, stöku síðdegisskúrir suðaustantil, en annars skýjað með köflum og þurrt að kalla. Heldur hlýnandi fyrir norðan, en hiti svipaður syðra. Á sunnudag: Austlæg eða breytileg átt, 3-8. Skýjað með köflum og stöku skúrir. Hiti 8 til 15 stig, svalast við norður- og austurströndina. Á mánudag og þriðjudag: Gengur í stífa norðaustanátt með rigningu austantil, en úrkomuminna vestantil og bjart með köflum suðvestantil. Hiti 7 til 15 stig, svalast norðan- og austanlands.
Veður Færð á vegum Mest lesið Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Erlent Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Innlent Girnist Panama-skurðinn, Grænland og Kanada Erlent Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Innlent Þau kvöddu á árinu 2024 Erlent Dregur úr vindi en áfram vetrarveður Veður Jólakindin Djásn á Stokkseyri Innlent Standa vaktina á jóladag: „Þetta er bara eins og hina dagana“ Innlent Um helmingur farþega komst lífs af Erlent Þak fauk nánast af hlöðu Innlent Fleiri fréttir Dregur úr vindi en áfram vetrarveður Appelsínugular viðvaranir og vegir víða lokaðir Appelsínugular viðvaranir og heiðar lokaðar Lokað um Þrengsli og vegir víða á óvissustigi Ákveðin suðaustanátt og víða snjókoma Stíf norðanátt og frost í flestum landshlutum Köldu éljalofti beint til landsins Víða kaldi og él Lægð beinir vestlægri átt til landsins Hlýnar með skúrum og slydduéljum Stormur á Austfjörðum Allhvass vindur með skúrum eða éljum Útlit fyrir allhvassan vind með rigningu Vindur á niðurleið en næsta lægð nálgast úr suðvestri Góðar líkur á rauðum jólum í Reykjavík Dregur úr vindi og úrkomu með morgninum Köld norðanátt og víða él Stöku él og vaxandi norðaustanátt Skúrir eða él á víð og dreif Vaxandi lægð og gular viðvaranir víða um land Gular viðvaranir í borginni og víðar Viðvaranir komnar í gildi og orðið ófært sums staðar Frost fór víða yfir tuttugu stig í nótt Kaldri norðlægri átt beint til landsins Gul viðvörun á Vestfjörðum Yfirgnæfandi líkur á óveðri á kjördag og líklegt að vegir teppist Skúrir eða slyddu en þurrt austantil Hiti að sex stigum Norðanátt og éljalofti beint til landsins Áfram kalt og bætir í vind á morgun Sjá meira