Innlent

Kom vini sínum til bjargar á fótboltaæfingu og 34. klukku­stund Bakgarðshlaups

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Margrét Helga Erlingsdóttir les kvöldfréttir klukkan hálfsjö.
Margrét Helga Erlingsdóttir les kvöldfréttir klukkan hálfsjö. Vísir

Maður sem er nýbúinn fá þjálfun í skyndihjálp bjargaði lífi félaga síns þegar hann fór í hjartastopp á Old boys fótboltaæfingu hjá Þrótti nú í ágúst. Stuttu síðar nýtti hann aftur þekkingu sína þegar annar leikamaður meiddist illa á æfingu. Félagar hans hafa ákveðið að tilnefna hann skyndihjálparmann ársins. Rætt verður við félagana í kvöldfréttum Stöðvar 2. 

Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, kemur í myndver og ræðir stöðuna í velferðarmálum. Undanfarna daga hefur verið sagt frá því í kvöldfréttum Stöðvar 2 að fatlaðir hafi þurft að bíða í mörg ár eftir NPA-þjónustu eftir að samningar hafa verið undirritaðir. Félagsmálaráðherra segir ríkið uppfylla allar sínar skyldur og boltinn sé hjá sveitarfélögunum.

Við förum yfir stöðuna á landamærum Ísrael og Líbanon og heyrum hvað Donald Trump, forsetaframbjóðandi Repúblikana, hafði að segja um möguleikann á öðrum kappræðum gegn Kamölu Harris, frambjóðanda Demókrata, á kosningafundi í gær.

Og við verðum í beinni útsendingu frá Bakgarðshlaupinu í Heiðmörk. Keppendur hafa nú hlaupið meira en 220 kílómetra.

Þetta og margt fleira í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×