Skoðun

Rang­færslur bæjar­stjóra

Stefán Georgsson skrifar

Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri í Hafnarfirði fór mikinn á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga nú fyrr í október. Í frétt Morgunblaðsins sem endursögð er að hluta á mbl.is segir Rósa kærur náttúruverndarsamtaka hafa kostað Hafnarfjarðarbæ 8 milljarða.

Hérna fer Rósa með rangt mál að öllu leyti. Annað hvort veit bæjarstjóri ekki betur eða hún er vísvitandi að fara með rangt mál til að slá pólítískar keilur.

Staðreyndir málsins eru þær að gegnum Skarðshlíðarhverfi í Hafnarfirði liggur Hamraneslína 1-2. Gatnagerð í hverfinu lauk að mestu árið 2008 og það stóð lengi óbyggt. Hafnarfjarðarbær og íbúar hafa lengi þrýst á Landsnet að færa línurnar eða setja þær í jarðstreng. Lagt var til árið 2015 að setja Hamraneslínu 1-2 í jarðstreng, en Landsnet tók það ekki í mál. Ferill málsins er rakinn á Facebook síðu áhugahópsins Jarðstrengja.

Sama ár (2015) fóru Íbúasamtök Valla í undirskriftasöfnun til að þrýsta á Landnset og í framhaldinu var gert samkomulag milli Hafnarfjarðarbæjar og Landsnets, meðal annars um að taka Hamraneslínu niður þegar búið væri að byggja nýjar raflínur til Hafnarfjarðar, svokallaður Lyklafellslínu.

Framkvæmdaleyfi vegna Lyklafellslínu (sem bæjarstjóri virðist rugla við Suðurnesjalínu 2) var fellt úr gildi 2018. Það var fellt úr gildi þar sem Landsnet gleymdi að skoða jarðstreng í öxl Bláfjallavegar sem valkost við loftlínu gegnum vatnsverndarsvæði í mati á umhverfisáhrifum.

Mat á umhverfisáhrifum er á ábyrgð framkvæmdaaðila og út í hött að kenna náttúruverndarsamtökum um að Landsnet fylgdi ekki lögum. Þetta er alveg skýrt í úrskurði ÚUA:

„Úrskurðarnefndin hefur að framan komist að þeirri niðurstöðu að ógilda beri hina kærðu ákvörðun þar sem ekki sé sýnt fram á að jarðstrengskostir séu ekki raunhæfir og samanburður á umhverfisáhrifum þeirra og aðalvalkosts framkvæmdaraðila hafi ekki farið fram með þeim hætti sem lög gera ráð fyrir.“

Til að gera langa sögu stutta fór svo að gjósa á Reykjanesi og jarðvísindamenn mæltu eindregið gegn þeim valkosti sem Landsnet lagði til. Því var hætt við allt saman og valkosturinn sem Landsnet hafði hafnað 2015 varð allt í einu raunhæfur. Nú í október 2024 (9 árum síðar) var jarðstrengur í stað Hamraneslínu í Skarðshlíð spennusettur og í framhaldi verður línan tekin niður. Í millitíðinni hafði Landsnet fært línuna til bráðabirgða með ærnum tilkostnaði. Níu ára töf og viðbótarkostnaður er alfarið á ábyrgð Landsnets, ekki frjálsra félagasamtaka.

Höfundur er verkfræðingur.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×