Hlúa að heilsunni í infrarauðum hita í skammdeginu Heitirpottar.is 25. október 2024 08:31 "Infrarauður hiti mýkir vöðva og liði, við svitnum og fáum hjartað til að pumpa svolítið. Þetta er frábært við vöðvabólgu og gigt," segir Ari Steinn Kristjánsson. „Við þurfum að hægja á okkur og gefa okkur tíma fyrir okkur sjálf og fyrir heilsuna. Framundan er dimmasti tími ársins og staðreynd að andleg heilsa margra okkar fer niður á þessum tíma. Með því að gefa okkur tuttugu mínútur á dag í infrarauðum hita hlúum við bæði að líkamlegri og andlegri heilsu,“ segir Ari Steinn Kristjánsson, einn eigenda Heitirpottar.is
Ari Steinn segir heilsusamlegan ávinning mikinn af infrarauðum hita á líkamann. Þá gefi stund í klefanum kærkomið frí frá áreiti umhverfisins. Ari Steinn lætur fara vel um sig í einum klefanna sem Heitirpottar.is selja. „Inni í klefanum erum við ekki með símann og ekki með sjónvarpið og getum hugleitt í ró. Þetta er frábær leið til að slappa af eftir vinnu eða skólann og gefur manni hugarró. Við mælum með þessu á kvöldin fyrir svefninn og best er að nota klefann á hverjum degi í stuttan tíma frekar en einu sinni í viku lengur í senn. Infrarauður hiti mýkir vöðva og liði, við svitnum og fáum hjartað til að pumpa svolítið. Þetta er frábært við vöðvabólgu og gigt. Það er einfalt að koma því inn í rútínu hjá sér að fara í klefann á hverju kvöldi fyrir svefninn eða á morgnana, það er líka gott að hefja daginn á þessu og þá er frábært að fara í klefann eftir æfingu,“ segir Ari Steinn. Plássleysi engin afsökun Infrarauðu klefana frá Heitirpottar.is er hægt að setja upp í heimahúsi og segir Ari Steinn lítið mál að setja þá upp. „Klefarnir koma í tilbúnum einingum sem mjög einfalt er að smella saman. Það tekur ekki nema fimmtán mínútur að setja saman minnsta klefann okkar og þarf varla verkfæri til þess. Svo er þeim bara stungið í samband í venjulega innstungu. Það eru einungis allra stærstu klefarnir sem þurfa auka rafvirkjavinnu,“ segir Ari Steinn en Heitirpottar.is selja nokkrar gerðir og stærðir af klefum sem ætlaðir innanhúss. Sá stærsti tekur 3 í sæti en sá minnsti er fyrir einn. Þessi klefi er kallaður Einmana en aðeins er pláss fyrir einn þar inni. „Við erum með alminnsta infrarauða klefann á markaðnum um allan heim. Við köllum hann Einmana, hann er 90 cm x 70cm og 136 cm á hæð og það er því bara pláss fyrir einn sitjandi mann en við höfum alveg komið tveggja metra manni þarna inn,“ segir Ari Steinn. „Plássleysi er því engin afsökun fyrir því að fá sér ekki klefa. Við eigum einnig klefa sem passar í horn, eins og hornskápur. Okkur er umhugað að koma heilsu í þjóðina og nú þegar skammdegið tekur yfir og við förum að eyða meiri tíma inni er infrarauður klefi frábær kostur heimavið.“
Heilsa Mest lesið „Ég hef gert mig þannig tilbúna fyrir þetta að ég eigi titilinn skilið“ Lífið Rikki G skilar lyklunum að FM957 Lífið Skuggavaldið: Popúlískir samsærisórar nú stjórnarhættir stórveldis Lífið Elísabet fær uppreist æru Gagnrýni Hvað er eðlilegt að stunda kynlíf oft í mánuði? Lífið „Nei, við mælum þetta krabbamein í mánuðum“ Lífið Segir gott að elska Ara Lífið Svona varð fimm hundruð milljóna Volcano Express til Lífið „Litagleðin er að springa út“ Lífið Var mjög heit fyrir lýtalækninum Lífið Fleiri fréttir Merkja uppgjöf í baráttunni og blása til sóknar Gæðadýnur á frábæru verði! Heilsan væri ekki sú sama án mjólkursýrugerlanna frá Probi Fermingargjöf sem lifir um ókomin ár Hlýleg stemming og einstök matarupplifun Úrval Útsýn færir landsmönnum sól og gleði í 70 ár Lada Sport okkar tíma Skráning hafin í Íslandsmeistaramótið í Ólsen ólsen Frumsýning nálgast og Minecraft og Oreo bregða á leik Eldabuskan græjar þriðju vaktina Wok to Walk opnar þrjá staði þar sem áður var Wok On Konudagsleikur - taktu þátt í skemmtilegri hefð Sýning sem breytir upplifun okkar á heiminum „Við ætlum okkur að finna fyndnasta hlátur Íslands“ Wolt og Blush með ástföngnum í liði á Valentínusardaginn „Við höfum það fyrir sið að faðmast í að lágmarki sjö sekúndur á hverjum morgni“ Almenningur eigi rétt á frjálsri för um óræktað land Óþægindi frá álagsmeiðslum minnkuð til muna með tilkomu Nutrilenk Stefnan sett á Ólympíuleikana 2028 „Í þessu jarðneska lífsbraski er G-vítamínið bráðnauðsynlegt“ Finnur þú fyrir uppþembu eða óþægindum eftir mat? „Mögulega besti tengiltvinnbíl sem framleiddur hefur verið“ Gerðu frábær kaup á húsgagnadögum JYSK NIVEA kynnir fyrstu hreinsivöruna með 5% serum Sjá meira