Fótbolti

Sjáðu þrennurnar hjá Díaz og Gyökeres og öll mörkin úr Meistara­deildinni

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Luis Díaz var í miklu stuði gegn Bayer Leverkusen.
Luis Díaz var í miklu stuði gegn Bayer Leverkusen. getty/Carl Recine

Luis Díaz og Viktor Gyökeres skoruðu báðir þrennu í Meistaradeild Evrópu í gær og AC Milan vann Evrópumeistara Real Madrid á Santiago Bernabéu. Alls voru þrjátíu mörk skoruð í leikjum gærdagsins í Meistaradeildinni og þau má öll sjá í fréttinni.

Liverpool sýndi mátt sinn og megin og vann 4-0 sigur á Þýskalandsmeisturum Bayer Leverkusen á Anfield. Díaz skoraði þrennu og Cody Gakpo var einnig á skotskónum. Liverpool er með tólf stig á toppi Meistaradeildarinnar.

Rúben Amorim stýrði Sporting í síðasta sinn á heimavelli þegar liðið gerði sér lítið fyrir og vann Englandsmeistara Manchester City, 4-1. Gyökeres skoraði þrennu fyrir Sporting og hefur gert 23 mörk í sautján leikjum í öllum keppnum í vetur. Maximiliano Araújo skoraði einnig fyrir Sporting en Phil Foden kom City yfir í upphafi leiks. Heimamenn svöruðu svo með fjórum mörkum.

Milan gerði góða ferð á Santiago Bernabéu og vann 1-3 sigur á Real Madrid. Malick Thiaw, Álvaro Morata og Tijjani Reijnders skoruðu mörk ítalska liðsins en Vinícius Júnior gerði mark Evrópu- og Spánarmeistaranna úr vítaspyrnu.

Lille heldur áfram að gera stóru liðunum skráveifu og gerði 1-1 jafntefli við Juventus á heimavelli. Jonathan David kom Frökkunum yfir en Dusan Vlahovic jafnaði fyrir ítalska liðið úr víti.

Monaco komst upp í 3. sæti Meistaradeildarinnar með 0-1 útisigri á Bologna. Thilo Kehrer skoraði eina mark leiksins.

Borussia Dortmund slapp með skrekkinn gegn Sturm Graz og vann 1-0 sigur á heimavelli. Markið skoraði Donyell Malen þegar fimm mínútur voru til leiksloka.

Nicolas-Gerrit Kühn skoraði tvö mörk og Reo Hatate eitt þegar Celtic sigraði RB Leipzig á Celtic Park, 3-1. Christoph Baumgartner skoraði mark þýska liðsins.

PSV Eindhoven rúllaði yfir Girona á heimavelli, 4-0. Ryan Flamingo, Malik Tillman, Johan Bakayoko og Ladislav Krejci (sjálfsmark) skoruðu mörk hollenska liðsins.

Þá sigraði Dinamo Zagreb Slovan Bratislava, 1-4. David Strelec kom heimamönnum yfir en gestirnir svöruðu með fjórum mörkum. Sandro Kulenovic skoraði tvö þeirra og Dario Spikic og Petar Sucic sitt markið hvor.

Öll mörkin úr leikjunum níu má sjá hér fyrir ofan.


Tengdar fréttir

Bernardo Silva: Man City er á dimmum stað

Manchester City tapaði ekki aðeins þriðja leik sínum í röð í gærkvöldi heldur steinlá liðið 4-1 á móti portúgalska liðinu Sporting CP frá Lissabon.

Amorim: Pep Guardiola er svo miklu betri en ég akkúrat núna

Rúben Amorim er að koma á Old Trafford og það er óhætt að segja að stuðningsmenn Manchester United séu orðnir spenntir. Ekki síst eftir gærkvöldið þegar Portúgalinn stýrði Sporting Lissabon til 4-1 sigurs á nágrönnunum í Manchester City í Meistaradeildinni.

Ótrúlegur sigur Sporting í síðasta heimaleik Amorim

Rúben Amorim stýrði Sporting í síðasta sinn á heimavelli þegar liðið tók á móti Manchester City í Meistaradeild Evrópu. Amorim tekur við Man United síðar í þessum mánuði og stuðningsfólk Rauðu djöflanna slefar eflaust yfir tilhugsuninni eftir ótrúlegan 4-1 sigur Sporting í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×