Íslenski boltinn

„Skil vel að KR-ingar séu með vatn í munninum yfir því sem koma skal“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
KR-ingar enduðu tímabilið af krafti.
KR-ingar enduðu tímabilið af krafti. vísir/anton

Spennandi tímar eru í vændum hjá KR að mati Baldurs Sigurðssonar og Atla Viðars Björnssonar. Þeir segja að KR-ingar megi alveg láta sig hlakka til komandi tíma hjá félaginu.

KR vann síðustu fjóra leiki sína á nýafstöðnu tímabili með markatölunni 19-1. Erfiðu og skrautlegu tímabili í Vesturbænum lauk því á jákvæðum nótum.

Óskar Hrafn Þorvaldsson tók við KR um mitt tímabil og undanfarnar vikur hefur liðið sankað að sér leikmönnum. Þá munu KR-ingar spila á gervigrasi frá og með næsta tímabili.

„Ég held að KR-ingar hlakki til og séu spenntir fyrir því sem Óskar ætlar að bjóða þeim upp á næstu árin,“ sagði Atli Viðar í Besta sætinu, hlaðvarpi íþróttadeildar Sýnar, þar sem tímabilið í Bestu deild karla var gert upp.

„Það er nýtt yfirborð á vellinum og mikið af nýjum andlitum að koma inn, mikið af uppöldum KR-ingum, þannig að ég skil vel að KR-ingar séu með vatn í munninum yfir því sem koma skal,“ bætti Atli Viðar við.

Óskar Hrafn Þorvaldsson er kominn aftur í KR eftir nokkra útlegð.vísir/anton

KR hefur alls samið við níu leikmenn undanfarnar vikur. Júlíus Mar Júlíusson, Óliver Dagur Thorlacius og Halldór Snær Georgsson komu frá Fjölni, Matthias Præst frá Fylki, Gabríel Hrannar Eyjólfsson frá Gróttu, Hjalti Sigurðsson frá Leikni, Alexander Helgi Sigurðarson frá Breiðabliki, Jakob Gunnar Sigurðsson frá Völsungi og Róbert Elís Hlynsson frá ÍR.

En hvaða leikmönnum eru þeir Atli Viðar og Baldur spenntastir fyrir?

„Mér finnst þeir meira vera að sækja hóp heldur en einstaklinga sem eiga að ráða úrslitum. En mér finnst Jakob Húsvíkingur, nærsveitungi Baldurs, vera ótrúlega spennandi leikmaður og ég hlakka til að sjá hvað hann gerir í KR-treyjunni, bæði í náinni framtíð og ef við horfum aðeins lengra, hversu hröð þróun verður á honum sem leikmanni,“ sagði Atli Viðar.

„Þú tókst minn mann, sem ég ætlaði að nefna hann,“ sagði Baldur léttur. 

„En ég var aðeins búinn að horfa til Fjölnisstrákanna. Við vorum búnir að fara yfir þetta. Vörnin og markvarslan var risastórt vandamál í sumar. Guy Smit var óútreiknanlegur. Halldór var ungur markvörður í Fjölni þetta eina ár mitt þar og það verður mjög spennandi að sjá hvort hann nái að festa sig í sessi hjá KR. Svo auðvitað Júlíus Mar. Það fara gríðarlega góðar sögur af honum og hann hlýtur að vera púsl inn í varnarleikinn, að ná að fínstilla hann.“

KR endaði í 8. sæti Bestu deildarinnar á nýafstöðnu tímabili. Liðið var lengst af tímabils í fallbaráttu en kom þér þaðan með góðum endaspretti.

Hlusta má á Besta sætið í spilaranum hér fyrir ofan. Einnig má hlusta á þáttinn á Spotify og öðrum hlaðvarpsveitum.


Tengdar fréttir

„Þetta er liðið hans Höskuldar“

Þeir Baldur Sigurðsson og Atli Viðar Björnsson, sérfræðingar Stúkunnar, hrósuðu Höskuldi Gunnlaugssyni, fyrirliða Breiðabliks, í hástert þegar tímabilið í Bestu deild karla var gert upp í Besta sætinu, hlaðvarpi íþróttadeildar Sýnar.

„Júlíglugginn kostaði FH þetta tímabil“

Atli Viðar Björnsson segir að slæm leikmannakaup FH í félagaskiptaglugganum um mitt sumar hafi gert út um möguleika liðsins á að vera í baráttu um Evrópusæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×