Innlent

Mynd­band sýnir um­fang skriðanna í Eyrar­hlíð

Atli Ísleifsson skrifar
Veginum um Eyrarhlið var nokkrum sinnum lokað vegna skriðuhættu í vikunni.
Veginum um Eyrarhlið var nokkrum sinnum lokað vegna skriðuhættu í vikunni. Haukur Sigurðsson

Vegagerðin hefur birt myndband sem sýnir vel umfang þeirra aurskriða sem féllu yfir veginn um Eyrarhlíð, milli Ísafjarðar og Hnífsdals á þriðjudag. Þar má einnig sjá starfsfólk Vegagerðarinnar við vinnu að hreinsa veginn.

Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að fordæmalausar aðstæður hafi skapast á Vestfjörðum síðustu daga vegna mikillar úrkomu sem hafi orsakað fjölda aurskriða sem hafi fallið úr fjallshlíðum, meðal annars á vegi.

Haukur Sigurðsson ljósmyndari tók myndbandið við Eyrarhlíð nærri Hnífsdal þar sem stór skriða fór yfir veginn þriðjudaginn 12. nóvember.

„Myndirnar tala sínu máli en í myndbandinu er rætt við Sigurð Guðmund Sverrisson, yfirverkstjóra hjá Vegagerðinni á Ísafirði og Gunnar Má Jónsson, verktaka. Gunnar segist aldrei hafa séð annað eins á sínum ferli, og Sigurður segir aðstæður erfiðar, enda sífellt að bætast við spýjur úr hlíðinni.

Skemmdir hafa orðið á vegriðum en ekki er ljóst hvort vegurinn sjálfur hafi orðið fyrir tjóni. Það mun koma í ljós á næstu dögum. Vegagerðin fylgist vel með þróun mála,“ segir á vef Vegagerðarinnar.

Haukur Sigurðsson

Haukur Sigurðsson

Haukur Sigurðsson

Haukur Sigurðsson

Haukur Sigurðsson

Haukur Sigurðsson



Fleiri fréttir

Sjá meira


×