Öruggt hjá liði Díönu Daggar og Andreu í Evrópuslag Íslendingaliðanna Smári Jökull Jónsson skrifar 16. nóvember 2024 20:27 Díana Dögg verður í eldlínunni með íslenska landsliðinu á EM í desember. Vísir/EPA Lið Blomberg-Lippe vann öruggan sigur á Metzingen í Íslendingaslag í EHF-bikarnum í handknattleik í dag. Með sigrinum tryggði Blomberg-Lippe sér sæti í næstu umferð keppninnar.
Díana Dögg Magnúsdóttir og Andrea Jacobsen vour í hóp Blomberg-Lippe í leiknum gegn Metzingen í dag og Sandra Erlingsdóttir í hópnum hjá Metzingen. Díana Dögg og Andrea eru báðar í landsliðshópi Arnars Péturssonar sem leikur á Evrópumótinu í desember en Sandra fer ekki með enda nýkomin af stað eftir að hafa eignast barn í sumar. Blomberg-Lippe var með níu marka forystu eftir 30-21 sigur í fyrri leik liðanna á heimavelli og því í raun formsatriði að klára síðari leikinn. Þar voru það gestirnir frá Blomberg-Lippe sem voru mun sterkari aðilinn líkt og í fyrri leiknum. Staðan í hálfleik í dag var 20-7, ótrúleg þrettán marka forysta gestanna en bæði liðin spila í þýsku úrvalsdeildinni. Í síðari hálfleik náðu heimakonur í Metzingen að minnka muninn niður í sex mörk en úrslitin í einvíginu voru löngu ráðin. Blomberg-Lippe vann að lokum 35-27 sigur og fer örugglega áfram í næstu umferð. Andrea skoraði fjögur mörk og Díana Dögg þrjú fyrir Blomberg-Lippe í dag en Sandra komst ekki á blað í liði Metzingen.
EHF-bikarinn Mest lesið Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport „Hann kvartar yfir öllu“ Enski boltinn Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fleiri fréttir Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Sjá meira