Rúben Amorim stýrði Manchester United í fyrsta sinn í dag þegar liðið sótti nýliða Ipswich Town heim. Þrátt fyrir draumabyrjun tókst United ekki að sækja sigur í fyrsta leik Amorim.
Marcus Rashford kom United yfir með góðu marki strax á 2. mínútu en það reyndist eina mark gestanna í leiknum. Þrátt fyrir að vera töluvert meira með boltann var kunnulegt stef í sóknarleik liðsins í dag en liðið skapaði varla markvert færi eftir markið.
Omari Hutchinson jafnaði metin með hnitmiðuðu skoti rétt fyrir hálfleik. Onana átti ekki séns í markinu þar sem boltinn breytti um stefnu þegar hann straukst við kollinn á Noussair Mazraoui.
1-1 jafntefli niðurstaðan sem hljóta að teljast vonbrigði fyrir United menn sem vonuðust eflaust eftir að öll vandamál heimsins myndu leysast með nýjum stjóra. Amorim fær nú tvo heimaleiki í röð til að setja mark sitt á liðið og sækja úrslit.
United mætir Bodø/Glimt í Evrópuleik á fimmtudaginn og á svo heimaleik í deildinni gegn Everton eftir viku.