Ævintýri Róberts og félaga heldur áfram Sindri Sverrisson skrifar 23. nóvember 2024 15:20 Róbert Orri Þorkelsson gæti verið á leið upp í norsku úrvalsdeildina með Kongsvinger en óvissa ríkir um framhaldið hjá honum. Vísir Róbert Orri Þorkelsson átti sinn þátt í því að koma Kongsvinger skrefi nær norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag, með 2-1 útisigri gegn Egersund.
Kongsvinger hafnaði í 6. sæti norsku 1. deildarinnar áður en deildakeppninni lauk, en aðeins tvö efstu lið deildarinnar komust beint upp í úrvalsdeild. Liðið náði hins vegar síðasta sætinu inn í umspilið um að komast upp í úrvalsdeildina. Kongsvinger þurfti svo að byrja á því að slá út liðið í 5. sæti, Lyn, og gerði það með 2-1 sigri eftir framlengingu, þar sem Róbert varð fyrir því óláni að skora afar slysalegt sjálfsmark. Í dag sló liðið svo út Egersund, sem hafnaði í 4. sæti, einnig með 2-1 útisigri. Næst þarf Kongsvinger svo að slá út Moss en liðin mætast á heimavelli Moss eftir viku. Sigurliðið úr þeim leik fer svo loks í einvígi við þriðja neðsta liðið úr úrvalsdeildinni, um að spila í úrvalsdeildinni á næstu leiktíð. Róbert Orri lék allan leikinn í dag en hann hefur verið að láni hjá Kongsvinger frá MLS-liði Montreal. Kanadíska félagið hefur nú tilkynnt að Róbert snúi ekki aftur til félagsins og því ríkir óvissa um framhaldið hjá varnarmanninum.
Norski boltinn Mest lesið „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann Sport Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Fótbolti „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM Fótbolti Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United Fótbolti „Þurfum að halda áfram á þessari braut“ Sport Fleiri fréttir Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Framlengir í Vesturbænum Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Loksins sigur hjá Tottenham Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Glódís Perla og félagar áfram með fullt hús á toppnum Sjá meira