Franskur Jordan í stað Gigliotti hjá Grindavík Sindri Sverrisson skrifar 10. desember 2024 12:30 Jordan Aboudou í leik með senegalska liðinu DUC en hann hefur mestan sinn feril spilað í Frakklandi. Getty/Juilen Bacot Grindvíkingar hafa gert breytingar á leikmannahópi sínum fyrir seinni hluta leiktíðarinnar í Bónus-deild karla í körfubolta.
Grindavík getur nú einbeitt sér að keppni í Bónus-deildinni eftir að hafa fallið úr leik í VÍS-bikarnum með tapi gegn Val á sunnudaginn. Eftir að hafa einnig tapað fyrir Val í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn síðasta vor er Grindavík nú með fimm sigra og fjögur töp það sem af er leiktíð í Bónus-deildinni, sex stigum á eftir toppliði Stjörnunnar. Grindavík hefur nú fengið hinn franska Jordan Aboudou, sem sagður er 201 sentímetri á hæð og fær um að spila bæði sem miðherji eða kraftframherji (fimma eða fjarki). Grindvíkingar taka fram að um sé að ræða mikinn háloftafugl sem hati ekkert að troða boltanum með látum. Aboudou hefur spilað megnið af sínum ferli í Frakklandi, bæði í efstu og næstefstu deild, og varð hann franskur meistari með Chalon árið 2012, þá rétt rúmlega tvítugur. Hann spilar sinn fyrsta leik gegn Val á föstudaginn. Aboudou kemur í staðinn fyrir miðherjann Jason Gigliotti sem kom til Grindavíkur frá Þór á Akureyri í sumar. Gigliotti skoraði að meðaltali 10,6 stig í leik í þeim níu deildarleikjum sem hann spilaði fyrir Grindavík, tók 6,1 fráköst og gaf 0,7 stoðsendingar.
Bónus-deild karla UMF Grindavík Mest lesið Mun Guðmundur reisa Holland við? Handbolti Einar mölbraut hendurnar á hlaupahjóli en átti magnað EM Sport Allt klárt hjá Aroni eftir erfiðustu ákvörðun ferilsins Fótbolti Musiala hneig niður í annað skipti á fjórum dögum vegna galla í taugakerfi Fótbolti Í bann fyrir neyslu kókaíns: „Ekkert af þessu afsakar það sem ég gerði“ Sport Rekinn eftir óásættanleg samskipti við yngri leikmenn Handbolti Mourinho: Rodri fékk mig til að efast Fótbolti Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Enski boltinn Daníel Guðjohnsen úr frystinum til Þýskalands Fótbolti Myndi taka kúlu fyrir Infantino Fótbolti Fleiri fréttir Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Íslensku stelpurnar unnu Dani og eru einum sigri frá A-deild Íslenska liðið enn ósigrað Don Nelson látinn Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Tryggði bæði framlengingu og skoraði sigurkörfuna Strákarnir byrja Evrópukeppnina á tveimur sigurleikjum Ísrael í undanúrslit á kostnað Íslands Sjöfaldur NBA meistari kennir íslenskum krökkum að setja stóru skotin Sjá meira