List Sísíar sameinar húmor og hjartahlýju í nýju jólahefti Rauði krossinn 19. desember 2024 15:15 „Ég var auðvitað mjög uppi með mér þegar Rauði krossinn bað mig um að gera jólaheftið í tilefni 100 ára afmælisins og mér hefur alltaf fundist það að teikna góð skemmtun,“ segir Sísi Ingólfsdóttir. Mynd/Rauði krossinn. Jólahefti Rauða krossins, með sínum klassísku jólamerkimiðum, hefur verið fastur liður í jólaundirbúningi Íslendinga allt frá árinu 1996. Ár hvert berst heftið inn á heimili landsmanna sem táknræn áminning um þá samkennd og mannúð sem samtökin hafa staðið fyrir í heila öld.
Í ár prýða jólamerkimiðarnir listaverk sem listamaðurinn Sísí Ingólfsdóttir gerði sérstaklega fyrir þetta tilefni. Sísí hefur stimplað sig rækilega inn í hjörtu landsmanna með margvíslegri listsköpun sinni, en er kannski frægust fyrir útsaumsverk sín þar sem hún biðst afsökunar á alls kyns hversdagslegum hlutum og uppákomum á gamansaman hátt. Verkin hafa slegið í gegn, enda nær Sísí að fanga þjóðarsálina í þeim á einstakan og skemmtilegan hátt. Miðarnir í ár eru byggðir á þessu skemmtilega þema. „Ég var auðvitað mjög uppi með mér þegar Rauði krossinn bað mig um að gera jólaheftið í tilefni 100 ára afmælisins og mér hefur alltaf fundist það að teikna góð skemmtun,“ segir Sísi. „Ég er óafsakanlega tækniblind og vinn því allt á gamaldags hátt, með blað og penna. Það var eins með merkimiðana. Það var auðvitað ánægjulegt að fá að gera þetta verkefni, að fá að láta gott af sér leiða með því að gefa þessa vinnu. En það eru einmitt ótal margir sjálfboðaliðar starfandi hjá Rauða krossinum sem hjálpar að hjálpa öðrum um heim allan.“ Eins og fyrr segir eru jólamerkimiðarnir byggðir á afsakið þemanu sem hefur svo sannarlega slegið í gegn. Það lá því beinast við að þróa þá hugmynd áfram. „Nú hef ég verið að afsaka mig bróðurpart ævinnar svo það kemur mér nokkuð eðlislega. Ég hef einnig unnið mikið með textaverk undanfarinn ár og ekki síst hinar ólíklegustu afsakanir sem ég hef saumað út í allt mögulegt, frá nytjahlutum yfir í allt of stór útsaumsverk. Sjálfri finnst mér alltaf skemmtilegast þegar fólk hefur húmor fyrir sjálfu sér og ekki síður þegar um fyrirtæki, stofnanir eða samtök eru að ræða þannig að þegar þau hjá Rauða krossinum voru til í hugmyndir mínar um valgreiðslur og að afsaka góðverk, þá var ég til í að teikna upp merkimiða og forsíðu jólaheftisins.“ Íbúar utan höfuðborgarsvæðisins geta nálgast jólaheftin í verslunum Kjörbúðar, Krambúðar og N1. Jólaheftið minnir landsmenn á þá fjölbreyttu hjálparstarfsemi sem Rauði krossinn sinnir, bæði innanlands og utan. Með því að greiða fyrir merkimiðana er fólk að leggja sitt af mörkum til verkefna sem styðja þá sem eiga um sárt að binda – ekki síst yfir hátíðarnar. Sjálfboðaliðar Rauða krossins standa vaktina hjá Hjálparsímanum 1717 og á netspjallinu 1717.is allan sólarhringinn, alla daga ársins, þar sem ekkert mál er of stórt eða smátt. Með því að taka þátt í þessum áratugalanga sið halda landsmenn áfram að styðja það mikilvæga starf sem Rauði krossinn sinnir á hverjum degi. En hvað skyldi vera helst framundan hjá Sísí á nýju ári? „Ég er að reyna lifa meira eftir því sem ég segi við aðra, bæði með listinni og í daglegu tali. Sýna sjálfri mér þolinmæði og mildi, hætta að minnka mig og biðjast svo afsökunar á því. Nei, ég er samt ekki á meðvirkni námskeiði þó ég hefði eflaust gott af því. Undanfarið ár er búið að vera allskonar og erfiðara en lagt var upp með fyrir ári. Heilsan hefur ekki verið mér hliðholl og þar sem ég á venjulega erfitt með að vera ekki út um allt og alls staðar með allt of marga bolta á lofti í einu þá er ég enn læra að hægja á mér. Afþakka góð tækifæri og spennandi boð, gera færri plön og ætla mér minna. Kannski læri ég það einn daginn. Suma daga er kannski bara nóg að anda, eða svo er mér sagt.“ Sísí Ingólfsdóttir er þekktust fyrir útsaumsverk sín þar sem hún biðst afsökunar á alls kyns hversdagslegum hlutum og uppákomum á gamansaman hátt. Verkin hafa slegið í gegn. Sísí segist samt ekki alfarið dottinn af baki og er aftur orðin heimavinnandi húsmóðir í úthverfi. „Ég er allt of mikill hugmyndarúnkari til þess, þó mér finnist fátt skemmtilegra en að hanga með börnunum mínum sjö, manninum mínum og að ógleymdum hundinum Krumma. Mig bókstaflega klæjar í puttana þegar ég hef ekki getað unnið í augnablik og verð þá að koma hugmyndum á blað eða frá mér með öðrum miðlum. Það er ófátt á teikniborðinu á næsta ári og margar hugmyndir sem ég þarf að koma frá mér. Þær eru sennilega fleiri en dagar ársins leyfa konu að koma í framkvæmd en fyrst er að geta staðið í fæturna ögn lengur svo ég verð víst að sýna líkamanum þolinmæði. Afsakið heilsukomplexana.“
Jól Góðverk Mest lesið Íslenskt La(m)bubu úr gæru, soðnu kindahorni og fiskaugum Tíska og hönnun Húsið fallega í Eyjum komið langt á veg Lífið Framkvæmdastjóri Eurovision bregst við ákvörðun Íslands Lífið Sigurvegari Eurovision skilar bikarnum Lífið Svipt krúnunni eftir að hafa gert sig skáeygða Lífið Hanskar Gunna Nels, árituð ManU-treyja og Elli Egils á uppboði Lífið Frumsýning á Vísi: „Sýna fólki hver Bubbi er í raun og veru“ Bíó og sjónvarp Listaverkin í World Class sem gjarnan hafa verið á milli tannanna á fólki Lífið Næturserum fyrir hárið – bylting í hárumhirðu Lífið samstarf Spígsporandi górilla á fyndnustu dýralífsmynd ársins Lífið Fleiri fréttir Ekkert betra en sú þerapía að rifja sitt eigið líf upp Næturserum fyrir hárið – bylting í hárumhirðu Glóandi hættulestur Árni Már og Unnar Ari opna vinnustofuna á laugardaginn Fólk hafði af því miklar áhyggjur að ég ætlaði að „pipra“ Fallegu jólagjafirnar fást í Maí Alvöru ítalskur veitingastaður í hjarta borgarinnar Pöbbkviss 5 söluhæsta spil landsins Gefðu töfrandi skemmtun í jólagjöf Epli með nýja stórglæsilega verslun Konfektleikur í tilefni 90 ára afmælis Nóa Síríus Samsæri á Paradísareyjunni Bjóða upp á jólakaffi allar helgar fram að jólum Fröken Dúlla og konurnar sem báru skömmina 48% aukið áhorf á sjónvarpsstöðvar Sýnar Snörp og áhrifamikil bók Jólagjafahugmyndir sem hitta í mark Vestfirsk náttúra skapar dulúð í nýjustu bók Margrétar S. Höskuldsdóttur Elvis heimsmeistari snýr aftur til Íslands Útreiðartúrinn leiðir lesendur inn í flókið net fjölskyldu, vináttu og leyndarmála Himnesk rúmföt úr egypskri bómull Nóvella sem leiðir lesandann inn í söguna á nýjan hátt Uppselt á stórtónleika Bubba – aukatónleikar fara í sölu á morgun Þegar vitvél fær spurningu um nasisma og allt fer í háaloft The Barricade Boys koma til Íslands með Broadway Party Nýtt lúxushótel við svarta strönd býður upp á kyrrð og fegurð Breyta bíóinu í risastórt skemmtisvæði í tilefni afmælis „Nýju hverfin eintómar stafsetningarvillur“ Nýjasta bók Gunna Helga sprengdi TikTok Skrímslaævintýri á Álftanesi varð að blómstrandi fjölskyldufyrirtæki Sjá meira