Tottenham áfram í undanúrslit eftir sjö marka leik með mörgum mistökum 19. desember 2024 22:00 Dominic Solanke og Jonny Evans komust báðir á blað í kvöld. Alex Pantling/Getty Images Tottenham er komið áfram í undanúrslit enska deildarbikarsins eftir 4-3 sigur gegn Manchester United, í leik sem einkenndist af mörgum markmannsmistökum. Tottenham ógnaði meira í upphafi leiks og tók forystuna eftir stundarfjórðung. Markmaður Manchester United, Altay Bayindir, sló þá langskot frá Pedro Porro beint út í teiginn og Solanke fylgdi eftir. Leikurinn var annars í ágætis jafnvægi í fyrri hálfleik og færi á báða bóga, en hvorugu liði tókst að skapa sér neitt stórhættulegt. Staðan 1-0 í hálfleik. Seinni hálfleikur hófst síðan afar illa fyrir United. Fyrst mistókst Lisandro Martinez að hreinsa fyrirgjöf úr teignum og boltinn datt fyrir Dejan Kulusevski sem smellti honum í netið og kom Tottenham tveimur mörkum yfir. Aðeins tíu mínútum síðar skoraði Dominic Solanke svo sitt annað mark og það þriðja í heildina hjá Tottenham. Hann fékk háa sendingu í hlaupaleiðina inn fyrir vörnina, kom sér á hægri fótinn og kláraði færið af öryggi. United minnkaði muninn á 63. mínútu eftir mistök í öftustu línu Tottenham. Markmaðurinn Fraser Forster átti misheppnaða sendingu á miðvörðinn Radu Dragusin, sem Bruno Fernandes las vel og stal boltanum, hann lagði svo út á Joshua Zirkzee sem kláraði færið. Fraser Forster gaf tvö mörk.Marc Atkins/Getty Images Fraser Forster gaf gestunum svo annað mark skömmu síðar. Hann hafði boltann í löppunum og tók allt of langan tíma í að losa sig við hann. Amad Diallo var öflugur í pressunni og tókst að tækla boltann í netið. Markmannsmistökunum linnti ekki, en sem betur fer fyrir Fraser Forster gerði hann ekki fleiri. Kollegi hans hjá Manchester United, Altay Bayindir, fékk mark á sig beint úr hornspyrnu. Heung Min-Son sveiflaði spyrnunni að marki, Bayindir vildi meina að brot hafi átt sér stað þegar hann stökk upp í boltann en hann fékk ekkert fyrir sinn snúð frá dómaranum. Bayindir fékk boltann yfir sig úr horni.Mike Egerton/PA Images via Getty Images United átti eftir að klóra í bakkann einu sinni enn, Jonny Evans minnkaði muninn í 4-3 á fjórða mínútu uppbótartíma en þar við sat og Tottenham heldur áfram í undanúrslit enska deildarbikarsins. Enski boltinn
Rifjuðu upp þegar Gummi spurði strákana eftir tvær umferðir hvort KR gæti orðið meistari Íslenski boltinn
Rifjuðu upp þegar Gummi spurði strákana eftir tvær umferðir hvort KR gæti orðið meistari Íslenski boltinn