Engar breytingar verða á tekjuskattsprósentu eða hámarksútsvari sveitarfélaga á milli ára. Viðmiðunarfjárhæðir þrepamarka tekjuskatts einstaklinga hækkar um 5,8 prósent.
Tekjuskattur lögaðila lækkar um eitt prósentustig en álagningarprósentan var hækkuð tímabundið fyrir þetta tekjuár. Skatthlutfallið verður tuttugu prósent á næsta tekjuári fyrir hluta- og einkahlutafélög.
Barnabætur hækka á milli ára með hækkun grunnfjárhæða og skerðingarmarka til samræmis við þróun verðlags og launa. Þá verða barnabætur fyrirframgreiddar á fæðingarári barns frá og með næsta ári, að því er kemur fram í tilkynningu á vef stjórnarráðsins um breytingarnar.
2,25 prósentustigum minna en hækkun verðlags
Krónutölugjöld á eldsneyti, áfengi og tóbak hækka um 2,5 prósent um áramótin en verðbólga síðasta árið var 4,75 prósent. Kolefnisgjald á jarðefnaeldsneyti hækkar aftur á móti um 59 prósent. Engar breytingar eru gerðar á kílómetragjaldi sem er lagt á hreinorku- og tengiltvinnbíla. Ekkert varð úr kílómetragjaldi á jarðefnaeldsneytisknúnar bifreiðar sem til umræðu var á þingi.
Almennt vörugjald á bensíni hækkar þannig um innan við eina krónu á lítra en olíugjald um tæpar tvær krónur.
Áfengisgjald á bjór hækkar um 3,70 krónur og verður 150,85 krónur á hvern sentílítra af vínanda í lítra eftir áramót. Á léttvíni hækkar gjaldið um 3,35 krónur og verður 137,4 krónur á sentílítra. Sterkt vín hækkar um 4,55 krónur á sentílítra og verður áfengisgjaldið á það 185,95 krónur eftir breytinguna.
Tóbaksgjald á vindlinga hækkar um 15,10 krónur á stykki og á neftóbak um 0,85 krónur á gramm.

Dýrari nikótínvörur
Gjald verður nú í fyrsta skipti tekið af svonefndum nikótínvörum: rafrettum og nikótínpúðum. Neysla á þeim hefur aukist verulega, sérstaklega á meðal yngra fólks. Gjaldið nemur átta til tuttugu krónum á hvert gramm eftir styrkleika nikótíns í vörunum.
Á rafrettuvökva verður lagt gjald frá fjörutíu og upp í sextíu krónur á hvern millilítra eftir styrk.
Virðisaukaskattur aftur á hefðbundin reiðhjól
Búast má við því að almenn reiðhjól hækki umtalsvert í verði á næsta ári. Undanfarin fimm ár hefur verið heimilt að fella niður virðisaukaskatt af ýmsum gerðum hjóla, þar á meðal hefðbundnum reiðhjólum. Sú heimild rennur út um áramótin og þá mun 24 prósent virðisaukaskattur aftur leggjast á reiðhjól.
Kaupendur rafhjóla eiga að geta sótt um styrki í gegnum Orkusjóð en enn er unnið að útfærslu þeirra styrkja.

Þriðjungshækkun gistináttaskatts
Töluverðar breytingar verða fyrir ferðaþjónustuna þegar nýtt ár rennur upp en þá hækkar gistináttaskattur fyrir hverja selda gistinótt um þriðjung, hvort sem er í íbúð, hótelherbergi, svefnpokaplássi eða stæði á tjaldsvæði. Á tjaldstæðum fer skatturinn úr 300 krónum í 400 en annars staðar hækkar hann úr 600 krónum í 800 krónur á hvern farþega.
Þá verður tekið upp nýtt innviðagjald sem skemmtiferðaskip í millilandasiglingum þurfa að greiða í staðinn fyrir gistináttaskattinn. Það verður 2.500 krónur á hvern farþega fyir hvern byrjaðan sólarhring sem skip dvelur innan lögsögunnar.