Fótbolti

Sara Björk jafnaði tvisvar fyrir Al-Qadisiya

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Sara Björk Gunnarsdóttir er leikjahæst í sögu íslenska kvennalandsliðsins með 145 leiki. Hún lagði landsliðsskóna á hilluna í byrjun síðasta árs.
Sara Björk Gunnarsdóttir er leikjahæst í sögu íslenska kvennalandsliðsins með 145 leiki. Hún lagði landsliðsskóna á hilluna í byrjun síðasta árs. vísir/vilhelm

Al-Qadisiya, lið Söru Bjarkar Gunnarsdóttur, gerði 3-3 jafntefli við Al-Ahli í sádi-arabísku úrvalsdeildinni í dag. Sara skoraði jöfnunarmark Al-Qadisiya í uppbótartíma.

Sara gerði tvö mörk í leiknum í dag. Hún jafnaði metin í 2-2 á 80. mínútu og svo aftur í 3-3 þegar þrjár mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma.

Sara hefur skorað þrjú mörk í síðustu tveimur leikjum Al-Qadisiya og alls fimm mörk í níu deildarleikjum síðan hún kom til félagsins.

Al-Qadisiya er í 4. sæti deildarinnar með fimmtán stig. Liðið er tólf stigum á eftir toppliði Al-Nassr sem hefur unnið alla níu leiki sína.

Sara gekk í raðir Al-Qadisiya frá Juventus í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×