Lífið

Mætti á undan Katrínu Tönju til landsins og kom henni á ó­vart

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Katrín Tanja kveðst svífa um á bleiku skýi eftir bónorðið.
Katrín Tanja kveðst svífa um á bleiku skýi eftir bónorðið. Skjáskot

Katrín Tanja Davíðsdóttir, tvöfaldur heimsmeistari í Crossfit, og Brooks Laich, fyrrverandi hokkíleikmaður, trúlofuðu sig þann 16. desember síðastliðinn, eftir þaulskipulagt bónorð Brooks. Katrín deildi trúlofunarsögunni í einlægri færslu með fylgjendum sínum á Instagram.

Í færslunni kemur fram að parið hafi varið jólum og áramótum á heimili þeirra í Coeur D’Alene í Bandaríkjunum. Á milli jóla og nýárs hafði Katrín Tanja ákveðið að fara í stutta ferð Íslands til að hitta fjölskyldu sína og vini, og að fá íslenska jólaandann yfir sig. Það sem hún vissi þó ekki var það að Brooks hafði þegar ferðast á undan henni og beið hennar á Íslandi.

„Þegar ég opnaði dyrnar á íbúðinni okkar stóð hann í miðri stofunni, umkringdur rósum, kertum og rósablöðum. Ég bara fraus. Ég var svo hissa og svo glöð. Það var eins og draumurinn minn væri að rætast, svo ég stóð bara þarna og sagði ekkert í um 30 sekúndur,“ skrifar Katrín Tanja sem kveðst aldrei hafa verið jafn hamingjusöm.

„Ég hef verið að svífa um á bleiku skýi og veit ekki hvort ég komist aftur niður á jörðina.“

Parið opinberaði samband sitt árið 2021, en fregnir af trúlofuninni hafa vakið athygli fjölmiðla erlendis. Bæði People og E! fjalla um hana, sem og Daily Mail.

Laich er kanadískur. Hann spilaði í NHL-deildinni frá 2004 til 2018, lengst af með Washington Capitals. Jafnframt spilaði hann með kanadíska landsliðinu.

Hann var áður giftur bandarísku leikkonunni og dansaranum Julianne Hough. Hún hefur óskað Laich og Katrínu Tönju til hamingju með trúlofunina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.