Fréttastofa BBC greinir frá.
Itooka lést á hjúkrunarheimili á borginni Ashíja í Japan en hún hafði verið elsta manneskja heims síðan aða María Branyas Morera féll frá í ágúst 2024, 117 ára að aldri. 27 ára borgarstjóri Ashíja sagði í tilkynningu að Itooka hafi veitt íbúum hugrekki og von í langlífi sinni.
Itooka fæddist í maí 1908, sex árum áður en að fyrri heimsstyrjöldin skall á. Hún var viðurkennd sem elsta manneskja heimsins í september á síðasta ári og hlaut í viðurkenningu frá Guinnes við tilefnið.
Á sínum yngri árum lagði Itooka kapp við blak og er einnig tekið fram að hún hafi í tvígang klíft fjallið Ontaka en tindur þess er í yfir þrjú þúsund metra hæð. Tekið er fram í tilkynningu borgarstjóra Ashíja að Itooka hafi notið þess að fá sér banan og Calpis sem er vinsæll japanskur mjólkurdrykk, á ævikvöldi sínu.