Handbolti

„Á örugg­lega eftir að sjá eftir því á ein­hverjum tíma­punkti“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Þórir skilar góðu búi af sér eftir sögulega góðan árangur í starfi.
Þórir skilar góðu búi af sér eftir sögulega góðan árangur í starfi. Maja Hitij/Getty Images

Hvernig fer maður að því að vinna til 17 verðlauna á stórmótum á 15 árum? Fáir þekkja slíka velgengni en Þórir Hergeirsson gerir það svo sannarlega. Nokkrir þættir þurfa að vera til staðar.

Þórir ákvað að láta gott heita eftir nýliðið Evrópumót þar sem Noregur varð Evrópumeistari í sjötta sinn og varð liðið einnig Ólympíumeistari í sumar. Ákvörðun Þóris var ekki léttvæg en hann stendur við hana.

„Maður á örugglega, á einhverjum tímapunkti eftir að sjá eftir því, en þetta er ekkert eitthvað sem ég ákvað í flýti. Ég á erfitt með að sjá mig í þessari stöðu eftir fjögur ár á Ólympíuleikum,“

„Þannig að þetta var mjög góður tímapunktur að stoppa og gefa nýjum þjálfara og teymi þann tíma sem það þarf,“ segir Þórir.

Þórir Hergeirsson hefur unnið til 17 verðlauna á 15 árum.Vísir/Sara

Hann var verðlaunaður fyrir framgang sinn á nýliðnu ári en hann hlaut fálkaorðu frá Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, á nýársdag og var kjörinn þjálfari ársins af Samtökum íþróttafréttamanna um helgina.

Þriðji þjálfarinn á 40 árum

Óhætt er að segja að eftirmaður Þóris taki við góðu búi. En hver er eiginlega lykillinn að svo lygilegum árangri?

„Þetta er auðvitað samfella varðandi þjálfara og teymi. Ég er þriðji þjálfarinn á einhverjum 40 árum,“

„Við vinnum mikla teymisvinnu sem gerir það að verkum að þú nærð út mjög mikilli kunnáttu frá öllum sem eru með. Við gerum það í gegnum teymisvinnu, og gegnum það sem við köllum involvering, að fá þær virkar með okkur í þessu,“ segir Þórir.

Býr til heild sem er óháð duttlungum þjálfarans

„Síðan er hluti af þessu líka að deila því sem maður kann með hinum og byggja það sem er kallað ægeskap, að þú eigir þetta verkefni sjálf og sjálfar. Það er miklu mikilvægara en eitthvað dæmi sem einhver þjálfari hefur fundið upp og aðrir eigi að fylgja og gera eins og hver og einn þjálfari á hverjum punkti segir,“

„Ef við náum að komast að góðum lausnum innan hópsins, þá skiptir eiginlega engu máli hver á hugmyndirnar. Þannig að við virkjum þær mjög mikið,“ segir Þórir.

Um er að ræða brot af heildarviðtalinu við Þóri sem birtur var í Sportpakkanum. Viðtalið í heild þar sem Þórir gerir upp tímann með Noregi og lítur til framtíðar má nálgast í spilaranum af Besta sætinu. Einnig má nálgast viðtalið á öllum helstu hlaðvarpsveitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×